Dómgæsla er tilvalin leið fyrir allt fótboltaáhugafólk að vera hluti af þessum frábæra leik og samtímis starfa fyrir félagið sitt. Þann 12. október hefst Unglingadómaranámskeið hjá KSÍ. Hafir þú áhuga á því að mennta þig sem dómara, og í framhaldinu dæma leiki fyrir Hauka, þá býðst félagið til að kosta öll námskeiðsgjöld. Þetta fyrsta námskeið fer að mestu fram á netinu og í gegnum tölvupóst en lýkur með skriflegu prófi.
Áhugasamir eru eindregið hvattir til að senda tölvupóst á fotbolti „hjá“ haukar.is með nafni og símanúmeri. Skráningarfresturinn rennur út 10. október.