Atskákmót Hauka

Atskákmótið byrjar n.k. fimmtudag 10. mars. Teflt verður tvo fimmtudaga í röð og hefst taflið bæði kvöldin kl: 19:00 !!! Tefldar verða 8. umferðir með 25 mínútna umhugunartíma. Áhugasamir geta skráð sig á netfangið skak@haukar.is. Þáttökugjöld verða 1000 kr. fyrir utanfélagsmenn, 500 kr. fyrir félagsmenn og 300 kr. fyrir alla yngri en 16 ára. Í verðlaun verða 8.000 kr. fyrir fyrsta sæti, 5.000 kr. fyrir annað sæti og 3.000 kr. fyrir þriðja sæti. Ef þáttaka fer yfir 35 manns hækka verðlaunin.