Allt getur gerst í þessum heimi og það fær Arnar Jón Agnarsson stórskytta okkar manna greinilega að finna fyrir en fyrir nokkrum dögum fékk hann þær fréttir að hann væri völubeinsbrotinn.
Við ákváðum að heyra aðeins í Arnari Jóni og kíkja á stöðuna á honum og báðum hann um að lýsa þessu aðeins fyrir okkur. Við gefum Arnari Jóni orðið;
„Þetta gerðist fyrir svona 2 mánuðum rúmum. Fyrir fyrsta leikinn á móti Fram í deildinni byrjaði ég að finna fyrir eymslum í ökkla og urðu þau verri með hverri vikunni og hef ég lítið getað æft af krafti seinasta mánuðinn, mér var sagt að þetta væri sennilega einhver kalk söfnun i liðamótum í ökklanum, en þegar búið var að skoða röntgen og sneiðmyndir af löppinni í seinustu viku þá kom í ljós að bein að nafni völubein var brotið, þetta geta orðið mjög slæm meiðsli ef ekki er gert strax eitthvað í þeim, þannig að það var lítið annað að gera en að drífa sig í aðgerð sem fyrst, auðvitað hefði ég helst viljað spila leikinn á móti HK í dag en eini tíminn sem var laus til þess að fara í aðgerð fyrir jól var í gær(fimmtudag) og því var ekkert annað í stöðunni en að nýta hann. “
Og Arnar Jón heldur áfram að lýsa þessu fyrir okkur, og við erum ekkert að trufla hann eitthvað meira, þannig gefum honum aftur orðið;
„Það voru settir einhverjir stálvírar i beinið og það skrúað saman. Ég verð á hækjum og í gifsi í væntanlega 6 vikur. Þannig að ég ætti að geta mætt eitillhress þegar deildinn byrjar aftur eftir janúarhléð. Það verður mjög gaman að losna við þessi blessuðu meiðsl þar sem ég var orðin verulega haltur frá degi til dags.“
En hefur hann eitthverja trú á Haukamönnum núna, þegar hann veit að hann getur ekki sett nokkrar sleggjur fyrir þá ?
„Ég hef fulla trú á því að strákanir klári HK án mín og deildarbikarinn. Dóri(Halldór Ingólfsson) er allur að koma til og síðan má ekki gleyma því að hann Gunnar Berg er auðvitað hálf örvhentur og er gríðarsterkur í hægri bakknum (að hans eigin sögn:)) “
Við vonum að Arnar Jón nái sér sem fyrst í völubeininu og vonum að völubeinið verði ekki að hrjá hann mikið meira.
Allir á völlinn í kvöld!
Digranes – Kópavogur – Föstudagur – 14.desember – 19.15 !
ÁFRAM HAUKAR