Andlátsfrétt

Látinn er Viðar Símonarson, einn af frækilegustu handknattleiksmönnum Hauka á árum áður. Viðar Símonarson var frábær leikmaður, hann lék yfir 100 leiki í meistaraflokki félagsins, 27 A landsleiki og 8 leiki með unglingalandsliði Íslands á þessum tíma. Þá var það stór stund þegar Viðar, sem þjálfari Hauka, fagnaði fyrsta bikarmeistaratitli Hauka árið 1980. Sem bikarmeistarar það ár tóku Haukar þátt í Evrópukeppni félagsliða og léku gegn þýsku meisturunum Nettlested. Haukar gátu borið höfuðið hátt eftir þann leik, en Nettelsted varð síðar Evrópumeistari félagsliða. Viðar var formaður handknattleiksdeildar Hauka árin 1962-1964 og stjórnarmaður handknattleiksdeildar til ársins 1968. Viðar kaus síðar að ganga til liðs við FH og átti þar mörg góð ár sem frábær handknattleiksmaður.
Knattspyrnufélagið Haukar minnist góðs félaga sem gerði garðinn frægan með félögum sínum sem lögðu góðan grunn að velgengni Hauka í handknattleik.
Knattspyrnufélagið Haukar minnist Viðars með hlýju og þakklæti um leið og félagið sendir fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minnig Viðars Símonarsonar.