Nokkrir vaskir Haukamenn tóku þátt í haustmóti T.R. sem lauk fyrir skömmu. Í upphafi var útlit fyrir það að auk undirritaðs myndu þeir Heimir og Sverrir Örn tefla í B-flokki. Á síðustu stundu var Heimir, sem er hæstur okkar á stigum, færður upp í A-flokk, vegna forfalla þar.
Þrátt fyrir að vera stigalægstur í A-flokki að þessu sinni var Heimir þó að tefla ágætlega. Uppskeran var þó ekki í samræmi við taflmennskuna og tvö jafntefli úr skákunum 9 voru kannski svona um 25% af því sem hann átti skilið að fá. Næsta mót verður þó án efa betra hjá Heimi.
Þeir Sverrir Örn og Þorvarður komust ágætlega frá B-flokknum. Báðir unnu þeir til verðlauna og töpuðu aðeins einni skák. Þorvarður lauk keppni í 2.sæti með 7 vinninga, hálfum vinning á eftir Garðbæingnum Jóhanni Ragnarssyni. Eftir tap gegn Jóhanni í 5.umferð var sigur á mótinu ekki lengur í mínum höndum. Þó var ekki um annað að ræða en að halda áfram að berjast og reyna að setja sem mesta pressu á Jóa.
Með sigri í 3 síðustu skákunum hefði Sverrir Örn náð a.m.k. 1-3. sæti. Eins og undirritaður þá átti Sverrir eina arfaslaka skák í mótinu. Sú skák var gegn öðrum Garðbæingi, Jóhanni Helga í 7.umferð. Þar með voru allir möguleikar hans á sigri í mótinu úr sögunni. Sverrir gerði svo jafntefli Jóhann Ragnarsson í síðustu umferðinni og lauk keppni í 3.sæti með 5 vinninga. Sverrir reyndi þó sitt ýtrasta að svíða Jóa í endataflinu og mátti litlu muna að það tækist.
Þrátt fyrir að vera næst stigalægstur í C-flokki, náði Daníel Pétursson (1580) þeim frábæra árangri að enda í 2.sæti með 6 vinninga. Að vísu er Daníel án efa miklu sterkari en stigin segja til um og þarf árangurinn í ljósi þess kannski ekki að koma svo mikið á óvart. Búast má við töluverðri stigahækkun hjá Daníel og tel ég 1700 stigin vera innan seilingar.
Í D-flokki enduðu þeir Ingi Tandri og Sverrir Þorgeirsson í 6-10. sæti með 5,5 vinning. Báðir voru þeir í toppbaráttunni nær allan tímann og hefðu með smá heppni vel getað unnið til verðlauna.
Að lokum langar mig til að útnefna Haukamann mótsins og verður ekki á neinn hallað þegar ég set Daníel Pétursson þar í 1.sæti !!!