2-2 jafntefli gegn Bolungarvík í Deildabikarkeppni

Í annað sinn á þremur dögum voru Haukar mættir í Fífuna til að leika í Deildabikarkeppninni – að þessu sinni síðasta leikinn í riðlinum sem reyndist vera nokkuð magurt og bragðdauft jafntefli gegn Bolungarvík 2-2 þar sem Andri Janusson og Úlfar Pálsson (sem lék í dag sinn fyrsta leik fyrir Meistaraflokk) gerðu sitt hvort markið.

Þar sem sæti í undanúrslitunum var þegar tryggt gat Daði Dervic leyft sér að hvíla marga leikmenn og stilla upp ungu og óreyndu liði í dag. Gróflega reiknað var meðalaldur byrjunarliðsins rúmlega 19.5 ár!

Liðinu var stillt upp á eftirfarandi hátt:

Bergsteinn

Lárus – Davíð – Pétur – Dagur

Jónas – Bjarki – Ellert – Úlfar

Arnar – Andri

Í hálfleik hækkaði meðalaldurinn eitthvað þegar Birgir Rafn, Kristján Ómar, Hilmar T., Hilmar E. og Kristinn komu inn á.

Haukarnir byrjuðu leikinn að þokkalegum krafti og virtust ætla sér að kafsigla vestanmennina strax í byrjun. Á 16. mínútu komst Jónas, einu sinni sem oftar, upp hægri kantinn og sendi boltann fyrir á Arnar Stein sem skallaði í slánna, aðeins fyrir Andra J. að hirða frákastið inn í teig og koma boltanum í markið.

Þegar leið á fyrri hálfleikinn komst Bolungarvík meira inn í leikinn og reyndist vera fullfært um að spila á milli sín boltanum og valda Haukunum vandræðum. Haukarnir voru þó nálægt því að skora á 37. mínútu þegar Ellert skaut fallegu bogaskoti í markslá andstæðinganna.

Einungis þremur mínútum síðar, á 40. mínútu, skoraði Bolungarvík eftir þunga sókn. Bolungarnir tóku þá hratt aukaspyrnu sem þeir áttu rétt fyrir utan teig og á meðan vörn Hauka stóð sofandi læddi einn Bolungurinn sér hægra megin fram hjá varnarmúrnum og skaut föstu skoti upp í þaknet Haukanna, illverjandi fyrir Bergstein í markinu.

Restina af fyrri hálfleik virtist Bolungarvík hafa náð nokkrum undirtökum í leiknum, og brá Daði því á það ráð að gera strax þrjár skiptingar í hálfleik og þá fjórðu fljótlega inn í seinni hálfleikinn. Þessar skiptingar skiluðu ekki meira en því að báðum liðum tókst aðeins að skora eitt mark í seinni hálfleik, líkt og í þeim fyrri, og því sat við 2-2 jafntefli sem Bolungarvík unir eflaust vel við.

Haukarnir voru þó klárlega sterkari aðilinn í seinni hálfleik og áttu nóg af færum, þar af nokkur sannkaulluð dauðafæri, en voru í sífellu gjörsamlega mislagðar fætur þegar nær dróg að vítateig andstæðinganna. Bolungarvík fékk víti af ódýrari gerðinni á 58. mínútu og skoraði örugglega úr því. Haukar náðu síðan að jafna metin á 79. mínútu þegar Úlfar náði að pota boltanum í netið eftir fyrirgjöf Arnars frá hægri kantinum. Ekki amalegt fyrir Úlfar að skora í sínum fyrsta leik fyrir Meistarflokk. Stanslaus pressa að marki Bolungarvíkur síðustu mínúturnar skilaði engu og geta liðsmenn Hauka nagað af sér handarbökin fyrir að hafa farið illa með mörg úrvalsfærin sem þeir fengu í seinni hálfleik.

Næsti leikur Hauka er undanúrslitaleikurinn í B-deild Deildabikarkeppninnar. Sá leikur fer fram laugardaginn 30. apríl klukkan 14:00. Hverjir andstæðingarnir verða og á hvaða velli verður keppt á kemur í ljós í vikunni og verður það tilkynnt hér á heimasíðunni þegar þar að kemur.