Þróttur – Haukar 2-1

Í gær heimsóttu Haukar lið Þróttara. Með sigri hefðu okkar menn farið langt með að tryggja stöðu liðsins í deildinni en tap myndi aftur á móti þýða taugatrekkjandi lokaumferð í deildinni.

Lið Hauka: Daníel K.; Darri, Davíð, Daníel, Óli; Edilon, Goran, Kristján Ómar, Ryan, Hilmar Trausti (Hilmar Geir); Ómar Karl (Arnar Steinn).

Haukar áttu mjög undir högg að sækja í fyrri hálfleik og fengu engin teljandi marktækifæri. Ómar Karl var langtímum saman einn og afar einmanna frammi í sókninni og fékk úr litlu að moða.
Það kom því lítið á óvart að heimamenn fóru með eins marks forystu inní búningsklefa í hálfleik. Markið kom u.þ.b. tíu mínútum fyrir hlé, glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu, algjörlega óverjandi fyrir Daníel í markinu.

Okkar menn komu miklu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og eftir tíu mínútna leik höfðu drengirnir jafnað metin. Þar var að verki enginn annar en Edilon Hreinsson, hans þriðja mark í síðustu tveimur leikjum. Markið skoraði Edilon af stuttu færi eftir að markvörður heimamanna hafði misst boltann klaufalega úr höndunum.
Markið virtist slá heimamenn all rækilega útaf laginu því okkar menn voru mun betri aðilinn næstu mínútur leiksins. Goran tókst til að mynda að koma boltanum í netið nokkrum mínútum seinna en markið var því miður dæmt af vegna rangstöðu…líklegast hárréttur dómur.
Áfram héldu okkar menn að þjarma að heimamönnum en þegar fór að líða nær leikslokum höfðu Þróttarar fært sig meira upp á skaftið og síðustu mínútur leiksins fóru að miklu leyti fram við vítateig Hauka liðsins.

Þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum bar þessi pressa Þróttara árangur og skoruðu þeir sigurmarkið með skalla úr markteignum, en all mikil og sterk rangstöðulykt var af því marki svo vægt sé tekið til orða.

Lokatölur því 2-1 fyrir Þrótt, sem með þessum úrslitum tryggðu sér sæti í efstu deild á næsta tímabili.
Haukanna bíður hins vegar úrslitaleikur á föstudaginn næstkomandi um að tryggja áframhaldandi veru í 1.deild. Mótherjar í þeim leik verða Blikar úr Kópavogi og má ljóst vera að það verður mjög erfið viðureign.
Leikurinn fer fram á Ásvöllum og hefst kl. 17:30 og þangað verða allir stuðningsmenn Hauka að fjölmenna og styðja við bakið á drengjunum.

Áfram Haukar!