Haukar standa um þessar mundir í samningaviðræðum við nýjan þjálfara meistaraflokks karla fyrir næsta keppnistímabil. Þjálfarinn sem um ræðir er Haukamaðurinn Aron Kristjánsson sem þjálfað hefur lið Skjern í Danmörku síðustu árin. Ef samningar nást verður skrifað undir í byrjun febrúar.
Aron lék með Haukum til margra ára. Fyrsti titill Arons með meistaraflokki Hauka var deildarmeistaratitillinn árið 1995. Hann var svo í bikarmeistaraliði Hauka árið 1997, þegar Haukar unnu tvöfalt. Hann fór svo í atvinnumennsku til Danmerkur og lék þar með Skjern. Aron kom svo heim og lék aftur með Haukum á árunum 2001 til 2003. Á þeim árum varð hann tvisvar sinnum deildarmeistari, einu sinni Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Þá fór hann aftur til Danaveldis og lék með Tvis Holsterbro. Hann tók svo við þjálfun liðs Skjern en hættir sem þjálfari liðsins í vor.