Þór Ak. – Haukar 0-0

Í dag fór fram leikur okkar manna og Þórsara á Akureyri. Við höfum því miður ekki mjög ítarlegar fréttir af leiknum sem stendur, en leikurinn endaði með markalausu jafntefli, sem verða að teljast mjög fín úrslit.

Það sem helst bar til tíðinda úr leiknum er það að Daníel var rekinn af velli undir lok leiksins eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald. Þar með er ljóst að hann verður í leikbanni í leiknum gegn Njarðvík á fimmtudaginn næstkomandi, en sá leikur verður gífurlega þýðingarmikill og gæti skipt sköpum varðandi það hvort við náum að halda sæti okkar í deildinni.

Þó er ljóst eftir þessi ágætu úrslit í dag að liðið er á uppleið og nú er það bara í okkar höndum að klára tímabilið sómasamlega og tryggja okkur 1.deildar sæti á næsta tímabili.

Áfram Haukar!