Úrslitin hjá stelpunum okkar

Jæja góðir hálsar, nú er komið að því.
Úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn eru að byrja hjá stelpunum okkar. Þær etja kappi við lið ÍBV og er fyrsti leikurinn á morgun kl. 16:15 á Ásvöllum og að sjálfsögðu er skyldumæting hjá öllum Haukum.

Haukar og ÍBV hafa marga hildi háð á undanförnum árum og nokkuð víst að þetta verða magnaðir leikir, þar sem boðið verður uppá spennu og aftur spennu. Og ekki mun vanta blóð, svita og tár.
Við Haukar mætum í komandi leiki full tilhlökkunar, við vitum hvað þetta er rosalega gaman, við ætlum að skemmta okkur og hafa mikið gaman. Áhorfendur geta haft mikil áhrif og góður stuðningur getur fleytt liðinu yfir hvað sem er. Stelpurnar okkar mæta tilbúnir og leggja allt undir og það skulum við áhorfendur líka gera. Við styðjum vel við bakið á stelpunum okkar og hvetjum á jákvæðan hátt, sama á hverju gengur. Við búum til góða stemmingu í pöllunum og sendum hana inná völlinn til stelpnanna okkar.

Við bjóðum stuðningsmenn ÍBV velkomna á Ásvelli sem og alla aðra handboltaunnendur og hvetjum fólk til að fjölmenna og sjá tvö af bestu liðum landsins, Hauka og ÍBV, kljást um Íslandsmeistaratitilinn.
ÁFRAM HAUKAR