Öruggur Haukasigur

Haukar bókuðu sig inn í átta-liða úrslitin í Subwaybikar kvenna í kvöld með auðveldum sigri á KR-b 117-45.

Sigur Hauka var aldrei í hættu og Haukar leiddu allan tímann.

Stigahæst hjá Haukum var Kristrún Sigurjónsdóttir með 22 stig og næst henni kom Guðbjörg Sverrisdóttir með 18 stig.

Haukar skoruðu fyrstu fimm stig leiksins en þau settu Slavica Dimovska(þrist) og Guðbjörg Sverrisdóttir(tvö víti). Eftir það var ljóst hvert stefndi og Haukar komust í 11-2, 20-10 og staðan 34-10 að loknum fyrsta leikhluta.

Í hálfleik var staðan 55-25 og sigur Hauka aldrei í hættu.

Lokatölur leiksins voru 117-45 Haukum í vil.

Yngvi Gunnlaugsson þjálfari liðsins gat leyft sér að leika á öllum leikmönnum liðsins í dag og léku allir þó nokkuð mikið. Allir 12 leikmenn liðsins komust á blað.

Mynd: Margrét Rósa Hálfdanardóttir er einn margra ungra leikmanna sem Haukastefan@haukar.is