ÍR-Haukar

Strákarnir okkar tryggðu sér tvö góð stig á móti ÍR í Austurberginu í kvöld. Lokatölur 29-33.

Leikurinn var frekar jafn í byrjun, ÍR var þó ávallt undan að skora. Í stöðunni 6-6 bilaði klukkan og langt hlé varð á leiknum. Heimamenn héldu áfram forystu 9-7 en þá fundu strákarnir okkar loksins taktinn, skoruðu næstu sjö mörk og breyttu stöðunni í 9-14. Í hálfleik var staðan 14-18 og það sem eftir lifði leiks héldu okkar menn góðri forystu. Mestur var munurinn 7 mörk en undir lokin slökuðu okkar menn á og ÍR náði að minnka aðeins muninn en sigurinn var aldrei í hættu.

ÍR-Haukar

Þá er Íslandmótið hafið!!!

Ég vil vekja athygli á því að M.fl. Kvk mun á morgun opna Íslandsmótið með leik gegn ÍR…

Leikurinn fer fram á ÍR velli, hefst leikurinn kl. 16:00 og mun standa til u.þ.b. 17:45….

Við bindum miklar væntingar við þennann leik þar sem þetta mun vera fyrsti leikurinn sem nýjustu leikmenn okkar spila, ef ekki er talinn með æfingaleikurinn sem við áttum á móti Blikunum síðastliðinn miðvikudag. sá leikur fór 3-0 fyrir Breiðablik en stóðu þessir nýju lekmenn sig með príði!!!

EÞssar ungu stúlkur heita Kris, Brit og Petrea. ég mun kynna þessa nýju leikmenn betur er upplýsingar þeirra liggja fyrir…

Að lokum vil ég hvetja alla til að mæta á ÍR völlinn á morgun kl. 16:00. Leikmenn Hauka skulu mæta kl. 14:30!!!

Sínum stuðning og mætum á völlinn…

ÍR-Haukar

Næstkomandi Föstudag 29.april munn fara fram leikur ÍR vs. Hauka Kl:21.00. Eftir að haukastelpurnar okkar hafa staðið sig svo vel í deildarriðlinum á móti Víði/Hetti seinasta Sunnudag. Viljum við haukakonurnar kvetja alla stuðningsmenn og áhugamenn, forelda og stjórn að koma að horfa á, því ykkar stuðningur skiptir máli.