Það var kominn tími til – Hafði ekki gerst síðan á síðustu öld !!! Í kvöld brutu stelpurnar okkar ísinn og unnu ÍBV úti í Eyjum. Lokatölur 24-25 og frábær sigur.
Stelpurnar okkar byrjuðu leikinn vel, skoruðu fyrsta markið og tóku frumkvæðið strax í upphafi. Þær voru með góða stöðu eftir um 10 mín.leik 4-7. ÍBV jafnaði 8-8 og hafði nokkur tækifæri á að komast yfir en vörnin hélt hjá okkur og héldum við eins til tveggja marka forskoti til hálfleiks. Þegar flautað var til leikhlés var staðan 13-14.
ÍBV komu vel stemmdar til síðari hálfleiks, jöfnuðu 14-14 og komust yfir 15-14 í eina skiptið í leiknum. Haukar jöfnuðu í 15-15 og og ÍBV jafnaði í 16-16. Þá kom góður kafli hjá Haukum, staðan 16-19, en ÍBV jafnaði 19-19 þegar síðari hálfleikur var hálfnaður. Haukar leiddu áfram með einu til tveimur mörkum en ÍBV jafnaði aftur 23-23 þegar um þrjár mín. voru eftir. Stelpurnar okkar héldu haus það sem eftir var leiks, en tæpt var það. En það var sigurinn sem skipti öllu mál þó naumur væri.
Stelpurnar okkar áttu fínan leik, vörnin var góð og sóknin gekk að mestu ágætlega. Þær gerðu þó heilmikið af mistökum sem verður að skrifast á spennuna.
Staðan í einvíginu er núna 2-0 fyrir okkur. Tveir frábærir sigrar en samt er ekkert unnið ennþá. Næsti leikur verður á Ásvöllum á fimmtudaginn kl. 19:40 og þá verður fjör og mikið gaman. Eyjastelpur komnar upp að veggnum fræga og mæta örugglega dýrvitlausar til leiks en okkar stelpur taka á móti þeim og ætla sér ekkert annað en sigur. Til þess þurfa þær allan þann stuðning sem við Haukar getum gefið og því er skyldumæting hjá öllum Haukum.
Nú styðjum við stelpurnar okkar til sigurs – Áfram Haukar.