Kynningarfundur fyrir nemendur sem eru að hefja nám í framhaldsskóla
haldinn 4. júní kl. 20:00 á Ásvöllum.
Samvinna Flensborgarskóla og handknattleiksdeild Hauka um íþróttaafrekssvið í handknattleik hófst haustönnina 2007. Það hafa frá 14-18 nemendur verið í náminu og hefur vel til tekist.
Hér er um að ræða athyglisvert tækifæri fyrir iðkendur í handbolta hjá Haukum, sem eru að hefja nám í framhaldsskóla, til að auka færni í greininni í samvinnu skóla og Hauka og fá það metið sem hluta af námsefni til stúdentsprófs.
Handknattleiksdeild Hauka býður ykkur velkomin til kynningarfundar á náminu þann 4. júní kl. 20:00. Vinsamlegast nýtið ykkur þetta tækifæri til að kynna ykkur þennan möguleika.
Með framsögu á fundinum verða:
- Díana Guðjónsdóttir íþróttafræðingur, íþróttakennari í Flensborg, þjálfari mfl. kvenna og þjálfari unglingaflokks kvenna.
- Pétur Vilberg Guðnason, formaður unglingaráðs handknattleiksdeildar Hauka.
Einnig munu sitja fyrir svörum:
- Aron Kristjánsson, kennari og þjálfari meistaraflokks karla
Aron Kristjánsson mun hafa umsjón með afrekslínunni hjá handknattleiksdeildinni á næsta ári og kenna fögin ásamt aðstoðarmönnum og gestaþjálfurum.