16 mættu á æfinguna og var hart barist um sigursætið. Sverrir Þ. hafði sigur úr bítum á endanum en hann hafði 14 v. af 15 mögulegum. Varði var þó ekki langt undan, endaði með 13,5 v. og var hálfum vinningi á eftir Sverri (þess má geta að greinarhöfundur gerði jafntefli við Varða). Sá þriðji, Ágúst Sindri, var heldur ekki langt frá en hann hafnaði með 13 vinninga. Á eftir þeim komu svo Guðmundur Sverrir með 11 v. og Ingi Tandri með 10 v. Hér koma úrslitin í heild sinni:
1. Sverrir Þ. með 14 af 15 v.
2. Varði með 13,5 v.
3. Ágúst Sindri með 13 v
4. Guðmundur Sv. með 11 v.
5. Ingi með 10 v.
6.-7. Aui og Gunnar með 9 v.
8. Geir með 8 v.
9. Gísli með 7,5 v.
10. Kristján með 6,5 v.
11. Raggi með 6 v.
12. Sverrir (eldri) með 4,5 v.
13. Jón Hákon með 4 v.
14. Rúnar með 3 v.
15. Ólafur með 1 v.
16. Freyr með 0 v.
Haukaæfingar eru haldnar á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 í samkomusal Haukahússins á Ásvöllum. Allir hjartanlega velkomnir!