Æfingin þann 11. mars

Alls mættu 11 á æfinguna þann 11. mars. Segja má segja að Aui hafi farið á kostum en formaðurinn endaði með 9 vinninga af 10 mögulegum. Sá eini sem sá við Aua var Heimir sem sigraði æfinguna með fullu húsi. Geir og Ingi voru svo jafnir í 3.-4. sæti með 7 vinninga. Hér koma úrslitin í heildina:

1. Heimir með 10 v. af 10 v.
2. Aui með 9 v.
3.-4. Geir og Ingi með 7 v.
5. Daníel með 6 v.
6. Gísli með 5 v.
7. Kristján með 4 v.
8. Jón Hákon með 3 v.
9.-10. Freyr og Rúnar með 2 v.
11. Ólafur með 0 v.

Haukaæfingar eru haldnar á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 í samkomusal Haukahússins á Ásvöllum. Allir hjartanlega velkomnir!