Við reynum að brydda upp á einhverju bæði skemmtilegu og alvarlegu í bland. Hópnum mun verða skipt amk. stundum upp í smærri hópa til að reyna að veita þeim þjálfun við hæfi. Einnig munum við æfa okkur með ýmiskonar keppni
Hvatt verður til mótaþátttöku á hinum ýmsu mótum en hápunkturinn fyrri part vetrar verður þegar lið frá Haukum taka þátt í Íslandsmóti unglingasveita taflfélaga 13 ára og yngri sem verður haldið samhliða úrslitaleik í bikarkeppni taflfélaga, en keppnin verður Laugardaginn 27. nóvember næstkomandi.
Æfingatímar eru frá kl. 17.15 til kl. 18.45. alla þriðjudaga í vetur.
Að öðru leiti viljum við benda á að fréttir munu berast af barna og unglingastarfinu jafnt og þétt í vetur á heimasíðu skákdeildarinnar http://www.haukar.is/skak
Þjálfarar í vetur eru
Páll Sigurðsson. S.861 9656
pall@vks.is
Margrét Huld Guðmundsdóttir s. 861 9651
mhg@bakkar.is