Æfing 7.september

14 manns tóku þátt í annarri æfingu vetrarins sem fram fór í gærkveldi. Eins og venjulega tóku menn með sér húmorinn og keppnisskapið og úr varð hin mesta skemmtun!

Stefán Freyr átti sitt slakasta mót í langan tíma, en náði engu að síður 11 vinningum! Oft er sagt að styrkurinn komi í ljós á slæmum degi og var árangur Stefáns í gærkveldi gott dæmi um það!

Maður kvöldsins var aftur á móti ungur piltur að nafni Sverrir Þorgeirsson! Hann endaði mótið með 10 vinninga af 13 (+9=2–2) og hafði undirritaður unun af því að horfa á drenginn leika hverjum nákvæma leiknum af fætur öðrum í endatöflunum! Það má glöggt sjá að Sverrir er í mikilli framför þessa dagana og ekki skortir hæfileikana. Frammistaða hans á Politiken cup í sumar var til mikillar fyrirmyndar og á sú reynsla eftir að koma honum til góða. Án efa mesta efni Haukamanna þarna á ferð!

Lokastaðan:

1. Þorvarður F. Ólafsson 11,5 af 13.
2. Stefán Freyr Guðmundss. 11
3-4. Sverrir Þorgeirsson og
Jón Magnússon 10
5. Auðbergur Magnússon 9,5
6. Daníel Pétursson 8
7. Ingi Tandri 7
8. Snorri Karlsson 6,5
9. Sverrir (eldri) 5
10. Baldur 4,5
11. Sveinn Arnarsson 4
12. Kristján 3
13. Geir 1
14. Rúnar Jónsson 0

Í lokin var bryddað upp á skemmtilegri nýjung! Skipt var í tvö jöfn lið þar sem farið var eftir frammistöðu manna á æfingunni. Einhverjir þurftu reyndar að fara, en þeir sem eftir voru skipuðu eftirfarandi lið.

Lið-A: Varði, Ingi, Snorri, Kristján, Raggi (sem kom seinna um kvöldið)
Lið-B: Stefán, Jón, Svenni, Baldur, Geir.

Lið-B byrjaði mun betur og vann m.a. 4-1 í 1.umferðinni. Þá þurfti Kristján að fara og Aui kom inn í staðinn. Við þetta styrktist A-liðið til muna og endaði viðureignin 12,5-12,5!

Ekki var Stefán Freyr sáttur við þessa niðurstöðu og heimtaði úrslitaumferð. Svo fór að A-liðið hafði þar betur, enda með betra lið eftir að Aui kom.

Niðurstaða: Frábær skemmtun eins og vaninn er á þriðjudagskvöldum! :o)