Þrátt fyrir stórleiki í meistaradeildinni var fín mæting á æfinguna í gærkveldi. Þó svo að miðað við elostig hafi sigur undirritaðs kannski ekki komið á óvart, var hann í miklum vandræðum með keppinauta sína.
Eftir að hafa gefið mér mann í forgjöf í byrjuninni, tók Snorri sig til og gjörsamlega rúllaði mér upp! Þá var Ingi búinn að pakka mér saman stöðulega, en féll í pattgildru í kolunni endatafli. Auk þess mátti ég þakka fyrir að hafa náð að vinna Sverri Þ. , Palla, Aua, Rögnvald, Arnar, og Brynjar Ísak, sem tefldi mjög vel á móti mér! Svanberg þurfti að fara eftir 9 umferðir og náði ég ekki að tefla við hann.
1…..Þorvarður Fannar…..12,5 af 14.
2…..Jón Magnússon……..11,5
3…..Sverrir Þorgeirsson..11
4-5…Auðbergur Magnússon..10
4-5…Ingi Tandri……….10
6-7…Rögnvaldur Jónsson…9,5
6-7…Snorri Karlsson……9,5
8…..Páll Sigurðsson……7,5
9…..Svanberg Már……….6
10….Brynjar Ísak……….5
11….Arnar Jónsson……..4,5
12….Baldur Snæhólm……..4
13-14.Kristján Ari……….2
13-14.Sverrir Gunnarsson….2
15….Rúnar Jónsson………0
Í lokin var það svo liðakeppnin og fór hún á þessa leið:
Lið A: Varði, Ingi, Rögnvaldur, Baldur = 9 vinningar.
Lið B: Jón, Aui, Snorri, Palli = 7 vinningar.