Ásgeir Þór í U19 ára landsliðið

Ásgeir Þór Ingólfsson, leikmaður Meistaraflokks og 2. flokks karla, hefur verið valinn í U19 ára landsliðshópinn sem mætir skotum í tveimur vináttulandsleikjum þann 8. og 10. september. Ásgeir hefur verið iðinn við kolann upp á síðkastið og greinilega náð athygli Kristins Jónssonar landsliðsþjálfara, en þess má til gamans geta að Kristinn þjálfaði einmitt Meistaraflokk karla hjá Haukum sumarið 1994. Leikurinn á laugardaginn þann 8.sept. verður í Sandgerði kl.14 og leikurinn þann 10. september verður á Keflavíkurvelli.

Í milli tíðinni, sunnudaginn 9.september, verður Ásgeir væntanlega í eldlínunni með Haukum sem mæta Selfoss í uppgjöri efstu liðanna í 2.deild. Bara til að tryggja það að Ásgeir Þór haldi sér í almennilegri leikæfingu þá verður hann einnig á ferðinni í kvöld kl. 18 á Ásvöllum, miðvikudaginn 5.sept., þegar 2.flokkur karla tekur á móti Fjölni, í leik sem Haukar geta komið sér á toppinn í deildinni með sigri. Allir á völlinn.