Á morgun, föstudag

Á morgun, föstudaginn 14.desember árið 2007 kl. 19.15 í Digranesi verður stórleikur í N1-deild karla er okkar menn fara í Kópavoginn og heimsækja útlendingana og Íslendingana í liði HK. Um er að ræða toppslag en við erum eins og allir vita í 1.sæti með 21 stig af 26 mögulegum, meðan HK eru í 2.sæti með 17 stig af 24 mögulegum þar sem þeir eru búnir að spila einum leik minna.

Miðvikudaginn 31.október kíktu liðsmenn Kópavogsliðsins við í Hafnarfjörðinn og gerðu tilraun til að stela stigum af okkur mönnum, en það gekk ekki alveg hjá þeim, og fóru okkar menn með örugg 2 stig heim, eftir að hafa skorað 26 mörk en Kópavogsliðið einungis 23 mörk. Í þeim leik fór Freyr Brynjarsson á kostum og setti 10 stykki af mörkum og svo kom Arnar Jón rétt á eftir Freysa með 5 mörk.
Hjá HK fóru útlendingarnir mikið og skoruðu þeir Tomas Eitutis, Augustas Strazdas og Sergey Petraytis samtals 14 mörk eða meira en helming mörk liðsins. Og þar að auki varði Egidijus Petkevicius markvörður liðsins 8 bolta frá okkar mönnum.

 

Síðasti leikur okkar manna var á Ásvöllum gegn Aftureldingu þar sem okkar menn fóru með þriggja marka sigur, eftir að hafa verið undir 11-13 í hálfleik. Í þeim leik var Arnar Jón seigur með 7 gullmörk og Freyr var með 100% nýtingu úr 5 skotum. Og í markinu gerði Gísli Guðmundsson góða hluti og varði heila 15 bolta.

 

Aftur á móti fengu HK enginn stig í síðustu umferð er þeir fóru í heimsókn til Framara, en þeir urðu að sætta sig við 29-28 tap eftir að hafa verið yfir 16-13 í hálfleik. Í þeim leik eins og svo oft áður skoruðu útlendingar HK helming marka liðsins. Augtustas Strazdas skoraði 7 mörk, Tomas Eitutis setti 6 mörk og félagi þeirra Sergey Petraytis ákvað að vera rólegur og setti einungis 1 mark. Landi þeirra í markinu Egidiujus Petkevicius átti stórleik í markinu og varði 23 bolta frá Frömurum þar að meðal eitt víti.

 

Stórskytta okkar manna, Arnar Jón Agnarsson verður fjarri góðu gamni á morgun en hann varð fyrir því óláni að ökklabrotna fyrr í vikunni. Ekkert við því að gera nema að senda bara Arnari baráttukveðjur og von um góðan bata.

 

Við hvetjum auðvitað alla Haukamenn nær og fær að flykkjast í Digranesið á morgun fyrir klukkan 19.15 og horfa á okkar menn etja kappi við sterkt Kópavogslið !

ÁFRAM Haukar!

 

– Arnar Daði Arnarsson skrifar.