Leikjaskóli barnanna
Leikjaskóli barnanna hefst laugardaginn 19. janúar á vorönn 2013.
Leikjaskóli barnanna er fyrir aldurinn 2-5 ára. Markmið leikjaskólans er að kynna iðkendum fyrir íþróttasalnum og áhöldum þar inni. Þá er farið í grunn hinna ýmsu greina ásamt grunnhreyfingum barna. Hér er lagt mikil áhersla á að iðkendur fái að njóta sín í faðmi forráðamanna sem eru með þeim allan tímann til halds og trausts. Hér fá börnin samverutíma í íþróttasalnum með forráðamönnum svo og undirbúningur fyrir skólavist er hafin.
Yngri hópur, 2-3 ára (fædd 2009-2010) á laugardögum kl. 9:30 - 10:15 í íþróttahúsinu á Ásvöllum. Eldri hópur, 4-5 ára (fædd 2007-2008) á laugardögum kl. 10:15 - 11:00 í íþróttahúsinu á Ásvöllum.
Þjálfari leikjaskólans er Marta Ólafsdóttir, íþróttakennari en Marta hefur mikið starfað með fötluðum og ófötluðum börnum.
Öll börn eru hjartanlega velkomin.
Dagskrá leikjaskólans er eftirfarandi:
19.1.2013 Hringþjálfun/Leikir
26.1.2013 Hringþjálfun/Boltatími
3.2.2013 Sundtími
9.2.2013 Hringþjálfun/Fallhlífaleikir
16.2.2013 Hringþjálfun/leikir
23.2.2013 Hringþjálfun/ Gjarðatími ALLIR AÐ MÆTA Í EINHVERJU RAUÐUJ
2.3.2013 Útitími
9.3.2013 Hringþjálfun/Leikir
16.3.2013 Hringþjálfun/Hlaupaleikir
23.3.2013 Hringþjálfun/ Boltatími ALLIR AÐ MÆTA Í NÁTTFÖTUM J
30.3.2013 Hringþjálfun/ Fallhlífaleikir
6.4.2013 Hringþjálfun/ Gjarðatími
13.4.2013 Hringþjálfun/Boltatímí
20.4.2013 Hringþjálfun/Hlaupaleikir
27.4.2013 Íþróttaskóli í Hraunvallaskóla, yngri frá kl 14-14:45 og eldri hópur frá kl. 14:45-15:30
4.5.2013 Fjölskyldutími
Í fjölskyldutímanum mæta yngri börnin á sínum tíma kl. 09:30 en eldri börnin kl. 10:00 þar sem góður gestur kemur í heimsókn.
Systkini, ömmur, afar, frændi og frænka velkomin.
Boðið verður upp á veitingar að tíma loknum.