Á fimmtudaginn hélt 30 manna hópur héðan í hina árlegu vorferð Öldungaráðs.
Ekin var Vatnsleysuströndin með viðkomu í Kálfatjarnarkirkju og Vogum þar sem Haukahjónin
Þóra Bragadóttir og Hafsteinn Ólafsson tóku á móti hópnum. Boðið var upp á glæsilegar veitingar í fyrirtæki þeirra hjóna, Beiti.
Ekið var síðan um Reykjanesið og endað Í Grindavík þar sem Salthúsið reiddi fram girnilegan kvöldverð.