Valur – Haukar í Dominos deild karla í kvöld kl. 19:15 að Hlíðarenda.

Haukar fara í heimsókna að Hlíðarenda í kvöld og munu etja kappi við heimamenn í Val í síðustu umferð Dominos deildar fyrir jólafrí. Með sigri geta Haukar farið í jólafrí á toppi deildarinnar og því til mikils að vinna í kvöld.

 

Haukar hafa harma að hef

 

na en þeir töpuðu síðasta leik sínum á móti Val, í 8 liða úrslitum bikar í fyrra, þar sem Valsliðið var miklu grimmara og unnu sanngjarnan sigur. Haukar hafa verið á góðu skriði uppá síðkastið og hafa unnið 7 leiki í röð í deild og bikar. Strákarnir hafa verið að spila góða vörn og agaðan sóknarleik og því verður gaman að sjá hvernig þeir koma til leiks í kvöld en mikið er í húfi fyrir Haukana, efsta sætið.

Valsliðið er vel skipað og hafa verið að spila vel en hafa verið nokkuð óheppnir með úrslit. Þeir hafa ekki náð að klára leiki á lokamínútum þrátt fyrir að hafa leitt nokkra leiki fram að síðasta fjórðung. Valsliðið spilar hraðan bolta og pressa allan völl og því þurfa Haukarnir að vera agaðir og passa að tapa ekki boltanum of mikið.

Leikurinn hefst kl. 19:15 og hvetjum við Haukafólk til að mæta á Hlíðarenda og hvetja Haukaliði til sigurs í þessum mikilvæga leik.

Áfram Haukar.