Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Íþróttastjóri

Haukar - KR

rStrákarnir mæta galvaskir til leiks á sunnudaginn eftir góðan sundsprettSunnudaginn 18. júlí hefst seinni umferð Pepsideildar karla með sannkölluðum stórleik, en þá koma KR-ingar í heimsókn á Vodafonevöllinn kl 19:15. Við vorum hársbreidd að sigra þá síðast, nú tekst það. Nú er að blása í herlúðra og allir að mæta á völlinn. Áfram Hauka

 
aobjecta

100 ára saga Íslandsmótsins í knattspyrnu

Haukar Opnuð hefur verið á Facebook síða sem kallar eftir ýmsum upplýsingum og myndum úr Sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu. Slóðin á síðuna er:

 http://www.facebook.com/pages/100-ara-saga-Islandsmotsins-i-knattspyrnu/140325259318152

100. Íslandsmótið í knattspyrnu fer fram árið 2011. Fyrst var keppt um Íslandsbikarinn 1912 á Íþróttavelli Reykjavíkur vestur á Melum. Þá tóku þrjú lið þátt í mótinu - Fótboltafélag Reykjavíkur (KR), Fram og Knattspyrnufélag Vestmannaeyja, KV. Það voru KR-ingar sem fögnuðu meistaratitlinum þetta ár.

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur ákveðið að gefa sögu Íslandsmótsins út í bundnu máli í tilefni tímamótanna og hefur Sigmundur Ó. Steinarsson, blaðamaður, verið fenginn til að skrá söguna, sem á að vera hin glæsilegasta.

Leit er byrjuð að gömlum myndum og hefur hún gengið ágætlega. Allir þeir sem hafa í fórum sínum gamlar myndir, eða vita um gamlar myndir - eru beðnir að hafa samband við Sigmund (GSM 669 1304), eða láta vita hér á síðunni - http://www.facebook.com/pages/100-ara-saga-Islandsmotsins-i-knattspyrnu/140325259318152 - eða senda tölvupóst til Sigmundar; Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Glötum ekki sögunni - ef þið vitið um gamlar knattspyrnumyndir í albúmum eða ýmsa gamla knattspyrnumuni, látið vita.
Var pabbi eða afi ykkar á ferðinni á upphafsárum knattspyrnunnar? Hann á það skilið að fá að vera með - að vera kallaður fram í sviðsljósið á nýjan leik, þegar Saga Íslandsmótsins kemur út 2011!

Hver mynd á sér sögu. Ef sú saga er ekki skráð með myndinni, er og verður myndin gagnlaus í framtíðinni og þá ónýt. Engin veit hvenær hún var tekin og hverjir eru á henni.

Verum vakandi um söguna - varðveitum hana.

 

 

Foreldrar og forráðamenn athugið

HaukarNú er komið að skráningu í íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar.

Íbúagáttin opnar á morgun 1. júlí og verður opin til 15. júlí. Nauðsynlegt er, til að fá æfingagjöld niðurgreidd að hluta, að fara á íbúagáttina og merkja við viðkomandi íþróttagrein sem iðkandi er í.

Við minnum á að hægt er að skrá barnið í fleiri en eina grein.

Allir iðkendur fá í þessari viku heim með sér af æfingu segla sem hægt er að setja á ísskápinn og þá muna allir eftir íbúagáttinni í þau þrjú skipti sem gáttin er opin yfir árið.

Endilega látið vita ef ykkar heimili hefur ekki fengið segul í byrjun næstu viku.

 

Gaman í vinnunni

Tónlistin var í botni á Ásvöllum í dag þegar strákarnir voru að þrífa.Þeir eru duglegir strákarnir í Vinnuskólanum hér á Ásvöllum. Í dag þrifu þessir strákar alla áhorfendapalla við dúndrandi tónlist og gerðu það vel.

Það er mikill fjöldi af unglingum við ýmis störf hér á Ásvöllum og má með sanni segja að þau séu öll dugleg og áhugasöm í að gera Ásvelli glæsilega innan- sem utandyra.

 


Borði


Molar

Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945.  Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50)