Stjórn handknattleiksdeildar vinnur að eflingu handboltans innan sem utan félagsins og markar faglega umgjörð um starfsemi Hauka á sviði handknattleiks. Stjórnin vinnur þannig að stefnumörkun á ýmsum sviðum, heldur utan um umgjörð leikja og hefur yfirumsjón með upplýsingamiðlun um handknattleik. Stjórnin skipar ennfremur í ýmsar nefndir og ráð innan félagsins, sérsambanda og sérgreinaráð íþráottahreyfingarinnar. Formaður stjórnar er talsmaður handknattleiksdeildar Hauka jafnt innan félagsins sem utan og leiðir starf deildarinnar.
Núverandi stjórn handknattleiksdeildar var kjörin á aukaaðalfundi deildarinnar 12. apríl 2013.
| 19. janúar 1938 var kvennaflokkur Hauka stofnaður af 41 stúlku. Kvennadeildin var fjörefni félagsins á þeim tíma og héldu stúlkurnar merki Hauka hátt á lofti. (Heimild: Haukar í 60 ár, bls. 21-22) |