Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Upplýsingar um það sem er á döfinni

Fræðslufundur um munntóbak

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÍ kvöld kl. 20:00 verður fræðslufundur um munntóbak og"frumsýning á veggspjaldinu" því tengdu. Ragna Margrét Brynjarsdóttir í meistaraflokki kvenna í körfubolta er einn af fulltrúum Hauka á plakatinu.

Fundurinn verður í Hásölum sem er safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju kl. 20:00.

Ég vil hvetja alla til að mæta og fræðast um þetta málefni.

 

Ósóttir búningar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÞeir sem eiga ósóttan Hummel fatnað geta nálgast hann hér á Ásvöllum á skrifstofutíma þ.e. milli 08:00 og 16:00.

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 29 Apríl 2010 09:06 )
 

Fótboltabúningar afhending 2

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarFyrir þá sem ekki komust á mánudaginn til að ná í fótboltabúningana sína verður önnur afhending á fimmtudagskvöld (sumardaginn fyrsta) milli 20:00 og 21:00.

Minni á að nafnamerking kostar 600 krónur.

 

Kvennakvöld Hauka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarKvennakvöld Hauka verður haldið 9. október næstkomandi.

Ekki tókst að finna dagsetningu nú í vor sökum anna hjá öllum deildum félagsins.

Þess í stað var dagsetningin 9. okt. ákveðin svo allar ættu að geta tekið daginn frá með góðum fyrirvara.

                                                                               Kvennakvöldsnefndin

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 15 Apríl 2010 15:47 )
 

Handboltabúðir Hauka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHandboltabúðir Hauka verða dagana 29. mars - 1. apríl.

Búðirnar eru fyrir alla krakka í 1. - 6. bekk. Gæsla frá kl.08:00 og dagskrá frá kl. 09:00-12:00.

Börnin þurfa koma með nesti með sér

Meistaraflokkar karla og kvenna sjá um þjálfunina.

Fjölbreyttar æfingar fyrir framtíðar stjörnur í handbolta.

Verð: 5.000, systkinaafsláttur.

Vítakeppni á markmenn meistaraflokks þar sem risapáskaegg verður í verðlaun ásamt happdrætti þar sem páskaegg og fleiri vinningar verða í boði.

Systkinaafslátturinn er 50% og hægt er að leggja inn á reikning 1101-26-500505 kt.0505773769

Skráning á netfanginu: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. - taka þarf fram nafn barns og fæðingarár.

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 28 Mars 2010 21:38 )
 

Leikjaskóli barnanna fellur niður á morgun

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarLeikjaskóli barnanna fellur niður á morgun laugardaginn 12. mars.

Ástæðan er fjölliðamót í 6. flokki kvenna í handbolta.

Við biðjum börn og foreldra afsökunar á þessu. Sjáums hress og kát að viku liðinni.

 

Tölvur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarKæri félagi.

Félaginu þínu bráðvantar tölvur. Gætir þú félagi góður gefið eða selt tölvu fyrir lítið. Auðvitað vantar okkur skjái og tilheyrandi. Vinsamlega hafið samband við Dísu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Heimir Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þú getur hjálpað félaginu. 

Með Haukakveðju 

Heimir og Dísa.

 

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 30 Mars 2010 22:37 )
 

Auka söludagur Hummel

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarVegna fjölda áskoranna hefur verið ákveðið að bjóða upp á auka söludag á Hummel æfingafatnaði.

Þessi dagur verður fimmtudaginn 11. mars kl. 17:00-20:00 á Ásvöllum.

Minni á númerkerfi deildanna, þeir sem eru fæddir á oddatölu ári velja sér oddatölu og þeir sem eru fæddir á sléttatölu ári velja sér sléttatölu.

Þegar búningur er valin þarf að ganga úr skugga um að númerið sem viðkomandi vill velja sé laust, ef einhver annar er búin að ná því þá verður viðkomandi að velja sér annað númer. Öll númer er skráð hjá starfsfólki söludagsins, ekki er hægt að panta númer fyrirfram.

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 04 Mars 2010 21:08 )
 

Hummel söludagar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar gerðu samning við Hummel nú í haust á keppnis- og æfingafatnaði. Nú er komið að söludögum þar sem fólk getur mætt og pantað Hummel vörur. Til sölu verða handbolta-, körfubolta- og fótboltabúningar, vindjakki, peysa og heilgalli.

Söludagarnir verða mán. 1. mars, þri. 2. mars og mið. 3. mars frá kl. 17:00-20:00 á Ásvöllum.

Nánar verður sagt frá dögunum síðar.

 

Aðalfundur knattspyrnufélagsins Hauka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarAðalfundur knattspyrnufélagsins Hauka verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18:00 í forsal Samkomusalar Ásvalla.

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.

Félagar fjölmennum á aðalfund félagsins.

 

Íbúagáttin opin 1. - 15. febrúar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Minni á að í dag 1. febrúar opnaði á ný fyrir umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki.

Frestur til að staðfesta þátttöku vegna vorannar 2010 (jan. – maí) er til og með 15. febrúar. Gáttin er aðeins opin einu sinni á þessu tímabili.

Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.

Nánari upplýsingar um íþrótta- og tómstundastyrkina eru í Íbúagáttinni, www.hafnarfjordur.is , en einnig hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500 og hjá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar í síma 555-2300.

 Einnig er hægt að hringja í íþróttastjóra félagsins og fá nánari upplýsingar s: 525-8702.

 

Síðast uppfært ( Mánudagur, 01 Febrúar 2010 20:25 )
 


Síða 9 af 13
Borði


Molar

Meistaraflokkslið Hauka í handbolta varð Íslandsmeistari á fjórða íslandsmótinu í handknattleik árið 1943, og urðu þar með fyrsta hafnfirska félagið til að verða Íslandsmeistari í flokkaíþrótt.

samstarfsadilar

Borði