Æfingatafla knattspyrnudeildar birt
Föstudagur, 27 Ágúst 2010 09:41
Guðbjörg Norðfjörð
Æfingatafla knattspyrnudeildar er komin á heimasíðuna, undir æfingatöflur hér hægra megin.
Við viljum biðja foreldra að taka æfingatímum með fyrirvara þar sem verið er að vinna í þjálfaramálum.
Flokkaskipti verða í eftirtöldum flokkum frá og með mánudeginum nema að annað komi fram á bloggsíðum flokkanna: 8. flokki barna 7. flokki karla og kvenna 6. flokki karla og kvenna 5. flokki karla og kvenna 4. flokki karla og kvenna
Aðrir flokkar klára tímabilið og mun þjálfari láta vita um flokkaskipti.
Æfingar hefjast samkvæmt nýrri æfingatöflu mánudaginn 30. ágúst.
Síðast uppfært ( Föstudagur, 27 Ágúst 2010 22:41 )
Æfingatöflur birtar
Fimmtudagur, 26 Ágúst 2010 23:26
Guðbjörg Norðfjörð
Æfingatöflur körfuknattleiksdeildar og handknattleiksdeildar eru komnar á heimasíðuna undir æfingatöflur hér hægra megin á síðunni.
Þessar töflur eru birtar með fyrirvara um breytingar og viljum við biðja foreldra að vera duglega að fylgjast með breytingum. Þjálfarar munu einnig tillkynna æfingatíma, og ef það verða einhverjar breytingar, á bloggsíðum.
Æfingar hefjast mánudaginn 30. ágúst samkvæmt æfingatöflu.
Æfingatafla knattspyrnudeildar kemur á heimasíðuna á morgun föstudag ásamt tilkynningu um hvenær flokkaskiptin fara fram. Þessar upplýsingar er einnig hægt að nálgast á bloggsíðum flokkanna.
Síðast uppfært ( Föstudagur, 27 Ágúst 2010 14:22 )
Æfingatöflur 2010-2011
Þriðjudagur, 24 Ágúst 2010 23:07
Guðbjörg Norðfjörð
Æfingatöflur vetrarins verða settar á heimasíðuna á fimmtudaginn kemur, 26. ágúst.
Ástæða seinkunnar eru breytingar sem þarf að gera og betra er að setja rétta töflu en að vera alltaf að breyta.
Við biðjum foreldra að sína þolinmæði og fylgjast með á heimasíðunni.
Æfingatöflur boltadeilda
Fimmtudagur, 19 Ágúst 2010 16:53
Guðbjörg Norðfjörð
Æfingatöflur boltadeildanna verða birtar á heimasíðunni þriðjudaginn 24. ágúst.
Vetrarstarfið fer síðan af stað samkvæmt æfingatöflum mánudaginn 30. ágúst.
Minnum á bloggsíður flokkanna en þangað fara allar þessar upplýsingar en hægt er að finna bloggsíðurnar hér vinstra megin á síðunni undir "Deild", "Yngri flokkar", velja flokkinn og þar veljið þið bloggsíðu flokksins.
Íþróttaskóli Hauka - 16.-19. ágúst
Föstudagur, 06 Ágúst 2010 12:59
Guðbjörg Norðfjörð
Síðasta vika Íþróttaskóla Hauka þetta sumarið styttist um einn dag. Þetta er vikan 16.-19. ágúst sem verður þá frá mánudegi til fimmtudags (föstudagurinn fellur niður). Ástæðan er sú að framhaldsskólarnir byrja þá og erum við þá komin í vandræði með starfsfólk.
Verð fyrir þessa viku er 2.000 fyrir hálfan dag og 4.000 fyrir heilan dag.
Garðar Halldórsson frv. formaður félagsins er látinn
Miðvikudagur, 16 Júní 2010 11:37
Guðbjörg Norðfjörð
Látinn er okkar góði félagi og fyrrum formaður, Garðar Halldórsson.
Hann var formaður félagsins 1969-1973. Garðar átti hugmyndina að því að breyta fiskvinnsluhúsi Jóns Gíslasonar í íþróttahús - Haukahúsið við Flatahraun. Garðar var alla tíð styrk stoð í því félags- og uppbyggingastarfi sem unnið hefur verið að til dagsins í dag.
Félagið sendir ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur og þakkar liðnar ánægjustundir.
Íþróttaskóli Hauka á Bessastaði
Miðvikudagur, 09 Júní 2010 20:00
Guðbjörg Norðfjörð
Íþróttaskóli Hauka mun á morgun, fimmtudag, fara á Bessastaði til að vera við komu eistlenska forsetans.
Lagt verður af stað kl. 09:30, þannig að mikilvægt er að mæta tímanlega með börnin í skólann. Það er ekki nauðsynlegt að taka með sér nesti fyrir morgunkaffið þar sem börnin fá hressingu eftir móttökuna.
Komið verður til baka fyrir hádegismat.
Mikilvægt er að börnin komi klædd eftir veðri.
|
Íþróttaskóli Hauka - upplýsingar
Mánudagur, 07 Júní 2010 20:34
Guðbjörg Norðfjörð
Fyrsti dagur Íþróttaskóla Hauka fer vel af stað. Það er mikil ásókn í skólann þetta sumarið og viljum við hvetja alla til að vera tímalega að skrá og koma með kvittun fyrir greiðslu til að flýta fyrir.
Nokkur atriði sem vert er að minnast á, krakkarnir þurfa að vera með nesti bæði í kaffitíma fyrir hádegi og eftir hádegi. Nú eru allir á fullu allan daginn þannig að hollt og gott nesti er algjörlega nauðsynlegt. Þau sem eru allan daginn fá síðan heitan mat í hádeginu.
Þegar krakkarnir koma í Íþróttaskólann að morgni þá eiga allir að koma fyrst í anddyri samkomusalarins og láta vita af sér. Foreldrar, vinsamlegast minnist á þetta við krakkana.
Mjög mikilvægt er að koma með kvittun ef millifært er fyrir gjaldinu. Reikningsnúmerið er 0140-26-626 kt. 700387-2839. Gjaldið er 2.500 fyrir hálfan daginn en 5.000 fyrir allan daginn.
Munum að búa krakkana eftir veðri, gott að hafa stuttbuxur og innanhússkó í pokanum ef farið er inn í sal.
Ef eitthvað er að þá endilega látið okkur vita svo við getum lagað hlutina.
Afhending á fóboltabúningum
Miðvikudagur, 26 Maí 2010 11:49
Guðbjörg Norðfjörð
Fótboltabúningarnir verða afhendir í dag milli kl. 17:00 og 20:00 á 2. hæð á Ásvöllum.
Minni þá á sem ekki hafa borgað fyrir nafnamerkingu að hafa með sér 600 krónur.
|
Æfingar í Risanum færast á gervigrasið
Miðvikudagur, 28 Apríl 2010 19:12
Guðbjörg Norðfjörð
Æfingarnar sem hafa verið í Risanum á sunnudögum færast, frá og með sunnudeginum 2. maí, á gervigrasið hér hjá okkur.
Sama tímasetning er á æfingunum nema annað sé tekið fram á bloggsíðum flokkanna - vinsamlegast fylgist vel með.
Afhending merktra handboltabúninga
Miðvikudagur, 28 Apríl 2010 19:09
Guðbjörg Norðfjörð
Á morgun fimmtudag ætlum við að afhenda merkta handboltabúninga.
Þeir verða afhentir hér á Ásvöllum milli kl. 18:00 og 19:00.
|
|
|
|
|
|
Síða 8 af 13 |