Jólin verða kvödd með dansi og söng á Þrettándagleði föstudaginn 6.jan. Hátíðin hefst kl. 18:00.
Glens og gaman með álfum, púkum og jólasveinum. Grýla og leppalúði verða á svæðinu.
Veitingar, blys og kyndlar á vægu verði.
Hátíðinni lýkur með veglegri flugeldasýningu kl. 19:00.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Kiwanismótið í handbolta verður einnig þennan dag og hefst kl. 15:00. Það eru stelpur og strákar í 7. flokki (árgangar 2002 og 2003) sem taka þátt. Liðin sem keppa eru Haukar, FH, Valur og Stjarnan.
Komið og sjáið framtíðarfólkið okkar í handbolta sýna listir sínar.
































