Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Upplýsingar um það sem er á döfinni

Stofnandi og heiðursfélagi 95 ára

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Í dag fagnar elsti Haukafélaginn, Helgi Vilhjálmsson, 95 ára afmæli sínu.

Helgi var einn 13 ungra pilta sem komu saman í húsi KFUM fyrir tæpum 82 árum og stofnuðu Knattspyrnufélagið Hauka.

Félagið sendir Helga innilegar hamingjuóskir.

 

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 10 Apríl 2013 16:09 )
 
aobjecta

Söludagar Hummel og Intersports

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarNú hafa Haukar, Hummel og Intersport gert þriggja ára samning um búninga handknattleiks- og knattspyrnudeildar.

Í tilefni af því verða söludagar á Ásvöllum þriðjudaginn 9.apríl og miðvikudaginn 10.apríl kl. 17:00-19:00.

Intersport mun af þessu tilefni setja upp Haukavegg í Intersprt Lindum sem mun standa allan ársins hring og getur Haukafólk keypt þar búninga og önnur Haukaíþróttaföt ásamt merktum Haukavörum.

Við hvetjum foreldra og forráðamenn að koma við á söludögunum og kanna úrvalið þar. 

 

Æfingar falla niður á Ásvöllum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÍ dag miðvikudaginn 6.mars falla æfingar niður frá kl. 15:30-18:00 vegna veðurs hér á Ásvöllum.

Varðandi hin húsin þá biðjum við forráðamenn að fylgjast vel með á bloggsíðum flokkanna hvernig fram vindur.

 

Leikjaskóli barnanna - útitími

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Næstkomandi laugardag, 2. mars, verður útitími hjá okkur og ætlum við að fara í nokkra leiki og hafa gaman saman.

Við ætlum að hittast á VÍÐISTAÐATÚNI klukkan 10:00 og minnum við alla á að koma klædda eftir veðri.

 
Hlökkum til að sjá ykkur

Marta, Margrét og Tinna

 

 

Sundtími í leikjaskóla barnanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarNæsti tími hjá leikjaskóla barnanna fer fram sunnudaginn 3.febrúar í Suðurbæjarlauginni.
Tíminn á laugardeginum fellur þá niður í staðinn.

Við ætlum að hittast í Suðurbæjarlauginni kl. 10:00 og leika okkur saman til kl. 11:00.

Þegar þið komið í laugina þá gefið þið ykkur fram í afgreiðslunni og þar verður merkt við ykkur.

Um að gera að mæta og eiga skemmtilega stund saman í sundi.

 

Áhugaverðir fyrirlestrar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Næstkomandi þrjá þriðjudaga verða haldnir opnir fyrirlestrar sem eru tilvaldir fyrir alla áhugasama Haukaiðkendur og foreldra og/eða aðstandendur þeirra.

 Fyrstu tveir fyrirlestrarnir voru haldnir sl. vetur og þurfti að endurtaka þá þar sem færri komust að en vildu.

 Það verður því aftur boðið upp á þá, auk nýs fyrirlesturs um hæfileika og það hvernig þeir verða til.

 Fyrirlesari er Kristján Ómar og verða fyrirlestrarnir í hér á Ásvöllum. 

Fyrirlestradagskrá:

Þriðjudagurinn 29. janúar kl. 20:00-21:00  Betri matarvenjur = betri í íþróttum og betri einkunnir

Þriðjudaginn 5. febrúar kl. 20:00-21:00  Fæðubótarefni - eitthvað fyrir íþróttaunglinginn?

Þriðjudaginn 12. febrúar kl. 20:00-21:00  Hvernig verða hæfileikar til?


Skráning

 

 

Síðast uppfært ( Mánudagur, 28 Janúar 2013 09:16 )
 

Leikjaskóli barnanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarGleðilegt ár og takk fyrir skemmtilegar stundir á haustönn.

Fyrst tími leikjaskóla barnanna verður laugardaginn 19.janúar.
Yngri hópur (2-3 ára) kl. 09:30
Eldri hópur (4-5 ára) kl. 10:15

Hlökkum til að sjá ykkur öll.

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 03 Janúar 2013 14:20 )
 

Leikjaskóli barnanna - sundtími

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarNú ætlar leikjaskóli barnanna að bregða út af vananum og skella sér í sund.

Sundtíminn er á SUNNUDAGINN kl. 10:00 í Suðurbæjarlaug.
Allir krakkar mega koma með eitt dót með sér.

Allir velkomnir - foreldrar gefa sig fram í afgreiðslunni og segjast vera að koma í leikjaskóla barnanna hjá Haukum. 

 

ÆFINGAGJÖLD - ÍTREKUN

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Þeir sem ekki hafa greitt æfingagjöld barna sinna fyrir 1.nóv. fá ekki að keppa fyrir hönd félagsins.

Sjá leiðbeiningar hér á síðunni eða hafið samband við íþróttastjóra á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 

 

Konukvöld Hauka árið 2012

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Síðast uppfært ( Mánudagur, 15 Október 2012 10:53 )
 

Greiðsla æfingagjalda - kerfið tilbúið

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Kæru forráðamenn

Nú er búið að opna fyrir kerfið sem sér um að taka á móti skráningu og greiðslu æfingagjalda. Það er búið að samkeyra kerfið (Nóri) við Hafnarfjarðarbæ og nú er hægt að fá niðurgreiðsluna strax með því að fara í gegnum mínar síður hjá Hafnarfjarðarbæ eða að fara í gegnum haukar.is sem leiðir ykkur á mínar síður.
Þetta er breyting frá því sem áður var því nú greiða forráðamenn mismuninn milli heildaræfingagjalds og niðurgreiðslu. Hafnarfjarðarbær greiðir síðan mánaðarlega beint til íþróttafélaganna niðurgreiðsluhlutann.
Þannig að það sem áður var eins og það að fara inn á íbúagátt og merkja við niðurgreiðslu þrisvar yfir árið er ekki lengur til, einng þá fá forráðamenn strax niðurgreiðsluna og þurfa því ekki að fá endurgreitt frá félaginu.

Það helsta við þetta nýja kerfi er að forráðamenn verða að ganga frá æfingagjaldinu í síðasta lagi 10. október til að fá fulla niðurgreiðslu. Ef það tefst fram til 11. október þá fellur niður niðurgreiðsla fyrir sept., ef skráð er 1.nóv. þá fellur niður greiðsla fyrir okt. o.s.frv. Við hvetjum því forráðamenn til að ganga frá greiðslu sem fyrst.

Hægt er að greiða með kreditkorti og skipta greiðslum í að hámarki 12 greiðslur – enginn aukakostnaður. Einnig er hægt að greiða með greiðsluseðli og skipta greiðslum í að hámarki 12 greiðslur – hér er rukkað svokallað þjónustugjald sem er ca. 450 krónur á hverja greiðslu.

Hægt er að fá leiðbeiningar um hvernig skráning fer fram á slóðinni http://haukar.is/ibuagatt.

Við vekjum athygli á því að það verður að ganga frá greiðslu til að fá niðurgreiðsluna.

 

 


Síða 1 af 8
Borði


Molar

Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma.  Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum.  Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði. 

samstarfsadilar

Borði