Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Upplýsingar um það sem er á döfinni

Knattspyrnuþjálfari óskast

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar Knattspyrnudeild Hauka auglýsir eftir yfirþjálfara fyrir kvennastarfið.

Við leitum eftir einstakling sem er tilbúin að hjálpa okkur byggja upp kvennastarfið – búa til samfellu milli allra flokka á faglegan hátt.

Við höfum mikinn hug á að efla kvennastarfið hjá okkur og myndi starfið felast í þjálfun ásamt faglegu utan um haldi.

 Menntun í íþróttafræðum og/eða knattspyrnuþjálfun er skilyrði.

Umsóknarfrestur er til mánudagsins 6. september.

Ef þú hefur áhuga hafðu samband við íþróttastjóra félagsins, Guðbjörgu Norðfjörð s: 861-3614 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og fáðu nánari upplýsingar.

 


 

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 31 Ágúst 2010 15:22 )
 
aobjecta

Haukamótið í golfi - Baddaskjöldurinn 2010

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarFöstudaginn 27. ágúst var Haukamótið í golfi haldið í 20. skipti á Hvaleyrinni. Fyrsta mótið var reyndar haldið í Hvammsvík í Kjós.

Að venju var þátttaka góð - 129 þátttakendur þrátt fyrir nokkur forföll.

Rauða jakkann hlaut að þessu sinni Ingvar Guðmundsson með 41 punkt.
Baddaskjöldinn hlaut sá er fór brautirnar 18 á fæstum höggum en það var Jónas Hagan Guðmundsson með 74 högg.
Sá fáheyrði atburður gerðist að einn keppandinn, Ingi Lárusson, fór holu í höggi á 4. braut.

Það var mál manna að sjaldan eða aldrei hafi mótið heppnast jafn vel og nú og ríkti góð stemmning í notalegu húsi Keilismanna er fjölmörgum veglegum verðlaunum var úthlutað. Ekki var laust við að hátíðar- eða afmælisandi ríkti á staðnum enda lofaði mótsstjórnin afmælismóti að ári.

 

Æfingatafla knattspyrnudeildar birt

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÆfingatafla knattspyrnudeildar er komin á heimasíðuna, undir æfingatöflur hér hægra megin.

Við viljum biðja foreldra að taka æfingatímum með fyrirvara þar sem verið er að vinna í þjálfaramálum.

Flokkaskipti verða í eftirtöldum flokkum frá og með mánudeginum nema að annað komi fram á bloggsíðum flokkanna:
8. flokki barna
7. flokki karla og kvenna
6. flokki karla og kvenna
5. flokki karla og kvenna
4. flokki karla og kvenna

Aðrir flokkar klára tímabilið og mun þjálfari láta vita um flokkaskipti.

Æfingar hefjast samkvæmt nýrri æfingatöflu mánudaginn 30. ágúst.

Síðast uppfært ( Föstudagur, 27 Ágúst 2010 22:41 )
 

Æfingatöflur birtar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÆfingatöflur körfuknattleiksdeildar og handknattleiksdeildar eru komnar á heimasíðuna undir æfingatöflur hér hægra megin á síðunni.

Þessar töflur eru birtar með fyrirvara um breytingar og viljum við biðja foreldra að vera duglega að fylgjast með breytingum. Þjálfarar munu einnig tillkynna æfingatíma, og ef það verða einhverjar breytingar, á bloggsíðum.

Æfingar hefjast mánudaginn 30. ágúst samkvæmt æfingatöflu.

Æfingatafla knattspyrnudeildar kemur á heimasíðuna á morgun föstudag ásamt tilkynningu um hvenær flokkaskiptin fara fram. Þessar upplýsingar er einnig hægt að nálgast á bloggsíðum flokkanna.

Síðast uppfært ( Föstudagur, 27 Ágúst 2010 14:22 )
 

Æfingatöflur 2010-2011

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÆfingatöflur vetrarins verða settar á heimasíðuna á fimmtudaginn kemur, 26. ágúst.

Ástæða seinkunnar eru breytingar sem þarf að gera og betra er að setja rétta töflu en að vera alltaf að breyta.

Við biðjum foreldra að sína þolinmæði og fylgjast með á heimasíðunni.

 

Æfingatöflur boltadeilda

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÆfingatöflur boltadeildanna verða birtar á heimasíðunni þriðjudaginn 24. ágúst.

Vetrarstarfið fer síðan af stað samkvæmt æfingatöflum mánudaginn 30. ágúst.

Minnum á bloggsíður flokkanna en þangað fara allar þessar upplýsingar en hægt er að finna bloggsíðurnar hér vinstra megin á síðunni undir "Deild", "Yngri flokkar", velja flokkinn og þar veljið þið bloggsíðu flokksins.

 

Íþróttaskóli Hauka - 16.-19. ágúst

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarSíðasta vika Íþróttaskóla Hauka þetta sumarið styttist um einn dag. Þetta er vikan 16.-19. ágúst sem verður þá frá mánudegi til fimmtudags (föstudagurinn fellur niður). Ástæðan er sú að framhaldsskólarnir byrja þá og erum við þá komin í vandræði með starfsfólk.

Verð fyrir þessa viku er 2.000 fyrir hálfan dag og 4.000 fyrir heilan dag.

 

Garðar Halldórsson frv. formaður félagsins er látinn

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarLátinn er okkar góði félagi og fyrrum formaður, Garðar Halldórsson.

Hann var formaður félagsins 1969-1973. Garðar átti hugmyndina að því að breyta fiskvinnsluhúsi Jóns Gíslasonar í íþróttahús - Haukahúsið við Flatahraun. Garðar var alla tíð styrk stoð í því félags- og uppbyggingastarfi sem unnið hefur verið að til dagsins í dag.

Félagið sendir ættingjum og vinum innilegar samúðarkveðjur og þakkar liðnar ánægjustundir.

 

Íþróttaskóli Hauka á Bessastaði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÍþróttaskóli Hauka mun á morgun, fimmtudag, fara á Bessastaði til að vera við komu eistlenska forsetans.

Lagt verður af stað kl. 09:30, þannig að mikilvægt er að mæta tímanlega með börnin í skólann. Það er ekki nauðsynlegt að taka með sér nesti fyrir morgunkaffið þar sem börnin fá hressingu eftir móttökuna.

Komið verður til baka fyrir hádegismat.

Mikilvægt er að börnin komi klædd eftir veðri.

 

Íþróttaskóli Hauka - upplýsingar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarFyrsti dagur Íþróttaskóla Hauka fer vel af stað. Það er mikil ásókn í skólann þetta sumarið og viljum við hvetja alla til að vera tímalega að skrá og koma með kvittun fyrir greiðslu til að flýta fyrir. 

Nokkur atriði sem vert er að minnast á, krakkarnir þurfa að vera með nesti bæði í kaffitíma fyrir hádegi og eftir hádegi. Nú eru allir á fullu allan daginn þannig að hollt og gott nesti er algjörlega nauðsynlegt. Þau sem eru allan daginn fá síðan heitan mat í hádeginu.

Þegar krakkarnir koma í Íþróttaskólann að morgni þá eiga allir að koma fyrst í anddyri samkomusalarins og láta vita af sér. Foreldrar, vinsamlegast minnist á þetta við krakkana.

Mjög mikilvægt er að koma með kvittun ef millifært er fyrir gjaldinu. Reikningsnúmerið er 0140-26-626 kt. 700387-2839. Gjaldið er 2.500 fyrir hálfan daginn en 5.000 fyrir allan daginn.

Munum að búa krakkana eftir veðri, gott að hafa stuttbuxur og innanhússkó í pokanum ef farið er inn í sal.

Ef eitthvað er að þá endilega látið okkur vita svo við getum lagað hlutina.

 

Fræðslufundur um munntóbak

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÍ kvöld kl. 20:00 verður fræðslufundur um munntóbak og"frumsýning á veggspjaldinu" því tengdu. Ragna Margrét Brynjarsdóttir í meistaraflokki kvenna í körfubolta er einn af fulltrúum Hauka á plakatinu.

Fundurinn verður í Hásölum sem er safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju kl. 20:00.

Ég vil hvetja alla til að mæta og fræðast um þetta málefni.

 


Síða 1 af 4
Borði


Molar

Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma.  Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum.  Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði.