
Körfuknattleiksleiksdeild Hauka mun verða með körfuboltabúðir fyrir krakka í 1.-10. bekk núna í dymbilvikunni. Körfuboltabúðirnar verða með svipuðu sniði og verið hefur þar sem áherslan er lögð á bolta- og skotæfingar.
Yfirþjálfari búðanna verður Pétur Ingvarsson fyrrum þjálfari mfl. hjá Haukum og Hamri. Honum til aðstoðar verða Ívar Ásgrímsson, yfirþjálfari yngri flokka og leikmenn mfl. Hauka verða á staðnum til að leiðbeina og kenna.
· Er fyrir alla krakka, stelpur og stráka í 1. – 10. bekk
· Þrír dagar, mánudagur til miðvikudags (25. – 27. mars)
· Frá kl. 12:00 – 15:00
· Allir fá páskaegg í lokin
· Verð kr. 3.000
· Skráning verður við mætingu á mánudaginn






Körfuknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Errea varðand búninga fyrir næstu þrjú árin.
Aðalfundur körfuknattleiksdeildar verður haldinn mánudaginn 1.febrúar í forsal samkomusalar.
























