Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Upplýsingar um það sem er á döfinni

Leikjaskóli barnanna fellur niður á morgun

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarLeikjaskóli barnanna fellur niður á morgun laugardaginn 12. mars.

Ástæðan er fjölliðamót í 6. flokki kvenna í handbolta.

Við biðjum börn og foreldra afsökunar á þessu. Sjáums hress og kát að viku liðinni.

 

Auka söludagur Hummel

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarVegna fjölda áskoranna hefur verið ákveðið að bjóða upp á auka söludag á Hummel æfingafatnaði.

Þessi dagur verður fimmtudaginn 11. mars kl. 17:00-20:00 á Ásvöllum.

Minni á númerkerfi deildanna, þeir sem eru fæddir á oddatölu ári velja sér oddatölu og þeir sem eru fæddir á sléttatölu ári velja sér sléttatölu.

Þegar búningur er valin þarf að ganga úr skugga um að númerið sem viðkomandi vill velja sé laust, ef einhver annar er búin að ná því þá verður viðkomandi að velja sér annað númer. Öll númer er skráð hjá starfsfólki söludagsins, ekki er hægt að panta númer fyrirfram.

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 04 Mars 2010 21:08 )
 

Hummel söludagar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarHaukar gerðu samning við Hummel nú í haust á keppnis- og æfingafatnaði. Nú er komið að söludögum þar sem fólk getur mætt og pantað Hummel vörur. Til sölu verða handbolta-, körfubolta- og fótboltabúningar, vindjakki, peysa og heilgalli.

Söludagarnir verða mán. 1. mars, þri. 2. mars og mið. 3. mars frá kl. 17:00-20:00 á Ásvöllum.

Nánar verður sagt frá dögunum síðar.

 

Aðalfundur knattspyrnufélagsins Hauka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarAðalfundur knattspyrnufélagsins Hauka verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18:00 í forsal Samkomusalar Ásvalla.

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.

Félagar fjölmennum á aðalfund félagsins.

 

Íbúagáttin opin 1. - 15. febrúar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Minni á að í dag 1. febrúar opnaði á ný fyrir umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki.

Frestur til að staðfesta þátttöku vegna vorannar 2010 (jan. – maí) er til og með 15. febrúar. Gáttin er aðeins opin einu sinni á þessu tímabili.

Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.

Nánari upplýsingar um íþrótta- og tómstundastyrkina eru í Íbúagáttinni, www.hafnarfjordur.is , en einnig hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500 og hjá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar í síma 555-2300.

 Einnig er hægt að hringja í íþróttastjóra félagsins og fá nánari upplýsingar s: 525-8702.

 

Síðast uppfært ( Mánudagur, 01 Febrúar 2010 20:25 )
 

Haukafólk

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Mætum öll á Ásvelli á laugardaginn 30. janúar.

Leikjaskóli barnanna verða með útitíma á morgun sem hefst  kl 9:30 (yngri hópur) og 10:15 (eldri hópur). 

Getraunastarfið opnar kl 10:00 - 14:00

Handboltamót er alla helgina hjá 5. flokk kvenna eldra ár. 

Að sjálfsögðu verður sýnt frá beinni útsendingu sjónvarpsins á landsleik Íslands og Frakklands í veislusalnum. Þetta er stór dagur í íþróttasögunni á Íslandi og gaman að njóta leiksins í góðum félagsskap í  “HÚSI SIGURVEGARANNA”.

Það verður líf og fjör, gleði og gaman, ungir sem aldnir á staðnum.

Áfram Ísland

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 31 Janúar 2010 18:18 )
 

Sýnt verður beint frá undanúrslitunum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarSýnt verður beint frá undanúrslitum Evrópumótsins í handbolta á laugardaginn hér á Ásvöllum.

Ekki er komið á hreint við hverja Íslendingar spila en það ræðst af úrslitum dagsins.

Fjölmennum og styðjum strákana.

 

Ísland - Rússland sýndur beint

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÍsland - Rússland verður sýndur beint í dag kl. 15:00 á efri hæð Ásvalla.

Áfram Ísland.

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 26 Janúar 2010 17:04 )
 

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarAðalfundur körfuknattleiksdeildar verður haldinn mánudaginn 1.febrúar í forsal samkomusalar.

Fundurinn hefst kl. 20:00.

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.

Félagar fjölmennum

                                                                                                                         Stjórnin

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 26 Janúar 2010 10:04 )
 

Ísland - Króatía sýndur beint á Ásvöllum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarÍsland - Króatía verður sýndur beint hér á Ásvöllum í dag en leikurinn hefst kl. 15:00.

Mætum og horfum á "strákana okkar".

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 26 Janúar 2010 17:04 )
 

Aðalfundur knattspyrnudeildar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

HaukarAðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn 28. jan. kl. 18:00 á 2. hæð Ásvalla.

Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.

Félagar, fjölmennum á fundinn.

 


Síða 1 af 4
Borði


Molar

Haukar voru stofnaðir 12. apríl 1931.