Strákarnir mæta Leikni F. á morgun, laugardag

mfl_krl

Haukar mæta Leikni F. í 17. umferð Inkasso deildarinnar á morgun, laugardag, og fer leikurinn fram á Ásvöllum kl. 14:00.

Okkar strákar eru sem stendur í 7. sæti deildarinnar með 20 stig en Leiknir Fáskrúðsfirði eru í neðsta sæti deildarinnar með 12 stig. Þrátt fyrir það má búast við hörku leik enda hafa leikir í Inkasso deildinni í sumar sýnt að enginn leikur er unninn fyrirfram.

Það er að sjálfsögðu mikilvægt að stuðningsfólk Hauka fjölmenni á Ásvelli og styðji okkar stráka til sigurs.

Stelpurnar skoruðu 10 mörk!
Í gærkvöldi mættu Haukar liði Gróttu í B riðli 1. deildar kvenna og fór leikurinn fram á Vivaldivellinum. Lokatölur urðu 10-0 fyrir okkar stúlkum þar sem þær Aníta Björk Axelsdóttir og Hildigunnur Ólafsdóttir gerðu tvö mörk hvor og þær Konný Arna Hákonardóttir, Sara Rakel S. Hinriksdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir, Stefanía Ósk Þórisdóttir og Heiða Rakel Guðmundsdóttir gerðu eitt mark hver. Eitt mark var sjálfsmark. Haukar eru í 2. sæti riðilsins með 28 stig þegar einn leikur er eftir og ljóst er að 2. sætið er niðurstaðan sama hvernig lokaumferðin endar..

Áfram Haukar!