Stórleikur í kvöld kl. 19.15. Fyllum Schenkerhöllina.

kr-haukar-leikur-3-62Fjórði leikurinn í rimmu Hauka og KR um Íslandsmeistaratitilinn í körfu fer fram í kvöld, fimmtudaginn 28. apríl, kl. 19:15 og þurfa heimamenn sigur til að knýja fram oddaleik sem fer fram nk. laugardag.

Haukarnir hafa verið á hraðri uppleið í þessari rimmu. Fyrstu leikurinn byrjaði vel en svo var eins og strákarnir hættu að spila sinn bolta og þeir létu ákveðna KRinga valta yfir sig. Í leik II þá var allt annað að sjá til liðsins en vantaði smá trú. Strákarnir voru með góða stöðu er um 2 min. voru eftir en slæmar ákvarðanir urðu til þessi að KR sigraði þann leik. Í þriðja leik í DHL höllinni sýndu strákarnir íslandsmeisturunum enga virðingu og unnu sanngjarnan sigur eftir framlengdan leik. Stórkostlegur sigur sem sýndi að strákarnir eru tilbúnir í verkefnið.

Nú þurfa stuðningsmenn Hauka að fjölmenna í pallana og hvetja strákana okkar til sigurs í þessum mikilvæga leik. Stuðningsfólk Hauka hefur haft í nógu að snúast síðustu daga og ættu að vera í góðri æfingu.

Fyllum höllina í kvöld af fólki í rauðu.

Áfram Haukar.