Stórleikur í bikarnum í kvöld

Björgvin og félagar mæta ÍR í 3. sinn á tímabilinu. Mynd: VísirErnir

Það verður sannkallaður stórleikur í 16. liða úrslitum Coca-Cola bikars karla þegar að meistaraflokkur karla í handbolta fær ÍR í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30.

Leikurinn í kvöld verður þriðji leikur félagana á tímabilinu en áður hafa liðin mæst tvisvar sinnum í deildinni. Liðin mættust fyrst í fyrsta leik tímabilsins í Schenkerhöllinni en þá unnu Haukar 21 – 19 í hörkuleik þar sem að Haukar voru með frumkvæðið mestan hluta leiksins. Síðan mættust liðin aftur í þar síðustu umferð í Austurbergi en þá höfðu ÍR-ingar betur 24 – 23 í öðrum hörkuleik.

Staða liðanna í deildinni er sú að Haukar sitja í 5. sæti með 17 stig á meðan ÍR er í 8. sæti með 11 stig. Þá má því enn á ný búast við hörkuleik þegar að þessi lið mæstast í kvöld kl. 19:30 í Schenkerhöllinni og upplagt fyrir Haukafólk að fjölmenna í rauðu til þess að styðja strákanna í baráttunni um að komast áfram í bikarnum. Áfram Haukar!