Stjarnan kemur í heimsókn í bikarnum

Það er komið að mikilvægasta leik tímabilsins hingað til þegar að Haukastelpurnar mæta Stjörnunni í 8-liða úrslitum Coca Cola bikarsins og er farseðill í Final 4 í boði. Leikurinn fer fram á morgun, þriðjudag, kl. 19:30 í Schenkerhöllinni og má búast við hörkuleik en liðin gerðu nýlega jafntefli í deildinni. Stjörnustúlkur hafa verið að sækja í sig veðrið upp á síðkastið en Haukastúlkur hafa spila vel á tímabilinu og er staðráðnar að tryggja sér sæti í Final 4 sjötta árið í röð.

Við minnum Hauka í horni að þar sem að um bikarleik er að ræða þá gilda kortin ekki inn á leikinn. Einnig verður hægt að kaupa sér hamborgartilboð á vægu verði fyrir leik. Það er því um að gera fyrir Haukafólk að fjölmenna á leikinn í rauðu og styðja stelpurnar. Áfram Haukar!