Söludagur Errea og kkd. Hauka miðvikudaginn 30. nóvember milli kl. 17:00 – 19:00

erreaErrea og kkd. Hauka verða með söludag fyrir leik hjá mfl. kvenna á miðvikudaginn.

Söludagur Hauka

Næstkomandi miðvikudag 30. nóvember verður söludagur í Haukahúsinu frá klukkan 17:00 – 19:00. Seldar verða keppnistreyjur, stuttbuxur, síðbuxur, peysur, töskur og fleira. Það verða einnig seldir sérstakir stuðningsmannabolir sem allir ættu að eignast. Það er svo gaman þegar stuðningsmenn mæta í eins treyjum og hvetja sitt lið. Upplagt í jólapakkann.

Meistaraflokkur kvenna er að keppa við Keflavík klukkan 19:15 sama kvöld.