Haukar sigruðu Álftanes í B riðli 1. deildar kvenna í kvöld þar sem Kristín Ösp Sigurðardóttir skoraði sigurmarkið á 90. mínútu.
Þrátt fyrir mikla yfirburði okkar stúlkna í fyrri hálfleik skoraði Álftanes fyrsta mark leiksins á 31. mínútu og þannig stóðu leikar þegar flautað var til leikhlés.
Haukar jöfnuðu leikinn á 74. mínútu og var þar að verki áðurnefnd Kristín Ösp en hún hafði komið inn á sem varamaður á 61. mínútu. Tvö mörk hjá Kristínu í kvöld!
Okkar stúlkur pressuðu stíft og náðu loks að skora sigurmarkið áður en dómarinn flautaði af.
Frábær sigur Hauka sem verma enn annað sæti riðilsins þar sem Grindavík sigraði líka í kvöld.
Næsti leikur okkar stúlkna verður gegn Grindavík á útvelli mánudaginn 25. júlí kl. 20:00 og þá verða Haukarar að mæta og hvetja sínar stúlkur til sigurs.