Síðasti leikur strákanna í Dominos deildinni í vetur í kvöld kl. 19:15

FagnHaukar leika sinn síðasta leik í vetur er sterkt lið Tindastóls mætir í Schenkerhöllina í kvöld, fimmtudaginn 9. mars og hefst leikurinn kl. 19:15.

Haukaliðið hefur nú unnið tvo síðustu leiki og spilaði einstaklega vel á móti Stjörnunni á útivelli í síðasta leik og tryggði þar með sæti sitt í deildinni. Leikurinn var mjög vel spilaður af hálfu Hauka og þar sýndi liðið sitt rétta andlið og var ákveðið bæði sóknar- og varnarlega allan leikinn og má segja að liðið hafi spilað eins og það gerði í úrslitakeppninni í fyrra. Allir mjög ánægðir eftir síðasta leik en samt ósáttir við tímabilið í heild.

Nú er framundan síðasti leikurinn og eru allir ákveðnir í því að enda tímabilið á sigri og ná 9 sigurleiknum í vetur en það gerist ekki oft að lið með 9 sigurleiki nái ekki í úrslitakeppni.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta snemma á Ásvelli og fá sér gæða „börger“  fyrir leik og hita upp með stuðningsliði körfunnar, Maníunni.