Selfoss kemur í heimsókn

Það er komið að næsta leik hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna í handbolta þegar að Selfoss kemur í heimsókn í Schenkerhöllina í Olís deild kvenna í kvöld kl. 19:30. Fyrir leikinn eru Haukastelpur í 3. sæti deildarinnar með 19 stig úr 15 umferðum og eru því í harðri baráttu á toppnum á meðan eru Selfoss stelpur í neðsta sæti deildarinnar með 4 stig. Bæði lið þurfa því bráð nauðsynlega stigin 2 í sinni baráttu. Það má því búast við hörku handboltaleik þar sem að bæði lið munu berjast hart um stigin 2. Það er um að gera fyrir Haukafólk að fjölmenna í Schenkerhöllina í kvöld, þriðjudagskvöld, og styðja stelpurnar í baráttunni. Áfram Haukar!