Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Almenningsíþróttadeild
Fréttir frá almenningsíþróttadeild Hauka

AFMÆLISHLAUP HAUKA Á FÖSTUDAG

Haukar

Afmælishlaup Hauka fer fram á föstudag!

Staður og tímasetning
Hlaupið verður haldið föstudaginn 12. apríl kl. 17:00.  Hlaupið verður frá Ásvöllum heimastöðvum HAUKA í Hafnarfirði. Hlaupið er almenningshlaup, ætlað allri fjölskyldunni og hentar ungum sem öldnum.
Hlaupinn verður einn km fyrir hvern áratug sem liðinn er frá stofnun HAUKA.

Vegalengdir
8,2 km án tímatöku og 3 km án tímatöku.

Leiðarlýsing
8 km hlaupið verður ræst frá Ásvöllum og hlaupið niður á Norðurbakka og að Hrafnistu. Snúningspunktur við Hrafnistu og til baka. 3 km hlauparar verða ræstir frá Ásvöllum og hlaupinn þægilegur hringur sem endar á Ásvöllum.


Engin flokkaskipting í hlaupunum. Úrdráttarverðlaun í báðum vegalengdum. Frítt er í hlaupið og engin skráning.

 

 
aobjecta

UTANVEGAHLAUP FYRIR ALLA HLAUPARA OG ÞAÐ Á HVÍTASUNNU

Haukar

Skokkhópur Hauka efnir til eins af fyrstu utanvegarhlaupum sumarsins 2013 og verður hlaupið um uppland Hafnarfjarðar annan í hvítasunnu, þann 20. maí 2013.

Lesa meira...
 

Hjólahópurinn vaknar úr dvala - Samhjól þriðjudaginn 12.mars

Haukar

Þriðjudaginn 12.mars kl. 19:15 hjólum við saman út í vorið frá Ásvöllum. Í roki eða rigningu eða einhverju betra skiptir ekki máli. Við byrjum í fyrsta gír og förum leið við allra hæfi og reiknum með 90 mínútum.

Við hvetjum alla áhugasama til að mæta og hjóla saman í góðum félagsskap. Að samhjóli loknu bjóðum við upp á léttar veitingar og þáttakendur fá tækifæri til að skrá nafn sitt í sögubækur hjólaklúbbs Hauka. Fyrir þá sem vilja síðan eitthvað meira krefjandi þá verður boðið upp á stífari hjólaæfingar á fimmtudögum kl. 19:15.  Fyrsta æfingin verður 21.mars undir stjórn þjálfara.

Æfingarnar verða auglýstar nánar síðar.

 

 
Borði


Molar

Meistaraflokkslið Hauka í handbolta varð Íslandsmeistari á fjórða íslandsmótinu í handknattleik árið 1943, og urðu þar með fyrsta hafnfirska félagið til að verða Íslandsmeistari í flokkaíþrótt.

samstarfsadilar

Borði