Páskabúðir kkd. Hauka dagana 10-12 apríl 2017.

páskabúðirKörfuknattleiksdeild Hauka verður með páskaæfingar fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára í dymbilivikunni, eða dagana 10-12 apríl frá kl. 12:30 – 15:00.

Áhersla verður lögð á bolta- og skotæfingar. Æfingunum mun verða skipt niður í stöðvar þar sem leikmenn mfl. karla og kvenna munu aðstoða krakkana og leiðbeina.

Yfirþjálfarar verða Emil Barja, leikmaður mfl. karla í Haukum en hann er menntaður íþróttafræðingur en auk þess mun Ívar Ásgrímsson, þjálfari mfl. kk. og A landsliðs kvenna koma og aðstoða við æfingar að hluta.

Verð er kr. 5.000 fyrir iðkenda en það er 50% systkinaafsláttur.

Hæft er að skrá og ganga frá greiðslu með því að leggja inná reikning 0140-26-017171 og senda kvittun á ivar@haukar.is með nafni iðkenda.

Einnig verður hægt að skrá og ganga frá greiðslu á mánudag, en viljum við benda fólki á að mæta þá fyrr, en byrjað verður að skrá kl. 11:50.