Norðurljós og stjörnum prýddur himinn

Processed with Snapseed.Þeim var vel fagnað stelpunum í meistaraflokki  í fótbolta þegar þær ný krýndar Íslandsmeistarar gengu í veislusal  hrossakjötsunnenda í gærkvöldi þar sem menn snæddu og ræddu málin.

Samúel formaður kynnti  m.a.  byggingaráform félagsins . Var gerður góður rómur að máli hans sem vakti athygli veislugesta. Nokkrir veislugesta fóru með gamanmál.  Góðri kvöldstund lauk  er menn gengu út í kyrra stjörnum prýdda haustnóttina sveipaða marglitum norðurljósum.