Námskeið fyrir dómara þriðjudaginn 16. febrúar

Kristinn Jakobsson reyndasti dómari Íslands mun kenna á námskeiðinu

0I3A2709Námskeið fyrir dómara verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ, þriðjudaginn 16. febrúar kl. 18:00.

Kristinn Jakobsson, reyndasti FIFA dómari Íslands, mun kenna á námskeiðinu. Aðaláherslan verður lögð á ,, að lesa leikinn og leikstjórn‘‘. Auk þess geta þátttakendur spurt Kristin spjörunum úr um hin ýmsu efni sem tengjast dómgæslunni.

Áætlað er að námskeiðið standi yfir í tvær klukkustundir. Námskeiðið er ætlað öllum starfandi dómurum sem áhuga hafa á því að bæta sig í starfi.

Skráning er hafin á magnus@ksi.is