Mjólkurbikarinn hefst á sumardeginum fyrsta

 

Ljósm.: Hafliði Breiðfjörð, Fotbolti.net

Nú er loksins komið að því sem allir hafa beðið eftir, fyrsti alvöru mótsleikur Hauka í sumar verður leikinn fimmtudaginn 19. apríl þegar að strákarnir taka á móti spræku liði Vestra á Gaman ferða vellinum að Ásvöllum.

Strákarnir eru nýkomnir úr velheppnaðri æfingaferð á Spáni þar sem að liðið lauk lokaundirbúningi fyrir tímabilið. Á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta, taka strákarnir á móti spræku liði Vestra í annari umferð Mjólkurbikarsins.

Liðin mættust fyrr í vetur í Fótbolta.net mótinu þar sem að vestfirðingar höfðu betur með tveimur mörkum gegn engu. Strákarnir hafa því harm að hefna og má búast við hörkuleik á Ásvöllum á morgun. Leikurinn hefst klukkan 14:30 og hvetjum við því alla Haukamenn nær og fjær að fjölmenna á völlinn og gera sér glaðan dag á sjálfan sumardaginn fyrsta.

14:30 Haukar – Vestri (Gaman ferða völlurinn)