Meistaraflokkur kvenna í frábærri ferð í Wolfsburg

Undanfarna daga hefur meistaraflokkur kvenna verið í heimsókn hjá knattspyrnufélaginu Wolfsburg í Þýskalandi. Ferðin hefur verið afar lærdómsrík og skemmtileg og móttökur Wolfsburg hafa verið ótrúlegar.

Magnaður leikvangur & Hádegisverður með Söru Björk

Haukakonur æfðu á æfingasvæði félagsins, fengu kynningu á starfssemi félagsins og stórglæsilegur AOK Stadion kvennaliðs Wolfsburg var heimsóttur. Þar gengu forráðamenn og fjölmiðlafulltrúi félagsins með hópnum um leikvanginn og ljóst að þegar völlurinn var byggður fyrir 2 árum var hugsað fyrir öllum þörfum fyrir frábæra aðstöðu. Stelpurnar áttu svo skemmtilega stund þegar þær borðuðu hádegismat með landsliðsfyrirliða Íslands Söru Björk Gunnarsdóttur.

Það hefur verið mjög áhugavert fyrir leikmenn ásamt forráðamönnum Hauka að sjá hvernig staðið er að kvennaknattspyrnu hjá einu fremsta félagi Evrópu. Heimsóknin hefur framið fram úr væntingum og í framhaldinu verður skoðuð frekari samvinna milli félaganna.

3-3 jafntefli & Stórleikur í dag

Í gær, laugardag, var leikinn æfingaleikur við blandað vara- og unglingalið Wolfsburg og skildu liðin jöfn 3-3 í skemmtilegum leik þar sem Þórdís Elva Ágústsdóttir, Margrét Björg Ástvaldsdóttir og Heiða Rakel Guðmundsdóttir skoruðu mörk Hauka. Hann fór fram á gamla aðalvelli félagsins sem getur tekið um 20 þúsund áhorfendur. Dagurinn endaði svo á því að horfa á leik hjá karlaliði Wolfsburg í Bundisligunni þar sem þeir unnu Darmstadt 1-0.

Ferðin heldur áram í dag þegar hópurinn fer á stórleik í Bundisligu kvenna þar sem heimastúlkur með Söru Björk í lykilhlutverki taka á móti Bayern Munchen, en þau lið berjast í toppi deildarinnar.

Áfram Haukar og Wolfsburg!

20170317_101926

20170317_150751

20170318_100430

20170318_115743