Marjani og Daníel Snorri valin best á lokahófi knattspyrnudeildar Hauka

  • Sæunn og Þórir Jóhann valin efnilegust
  • Alexandra og Daníel Snorri knattspyrnufólk sumarsins
  • Brynjar Viggós fór á kostum í veislustjórninni
  • Hauka-pýramídi með Daníel á toppnum

Það var mikið fjör á lokahófi knattspyrnudeildar Hauka sem fram fór í gærkvöldi í samkomusal félagsins á Ásvöllum. Brynjar Viggósson, stjórnarmaður í knattspyrnudeild Hauka, sá um veislustjórn og var æviráðinn í það hlutverk í lok kvöldsins.

Bestu leikmenn sumarsins að mati leikmanna voru þau Marjani Hing-Glover og Daníel Snorri Guðlaugsson.

Marjani skoraði sjö mörk í Pepsí deild kvenna í sumar og tvö mörk í Borgunarbikarnum og Daníel heillaði fólk með vinnusemi og dugnaði á miðjunni.

Sæunn Björnsdóttir og Þórir Jóhann Helgason voru valin efnilegust, Sæunn annað árið í röð.

Alexandra Jóhannsdóttir, sem hefur tekið þátt í fjölda verkefna með yngri landsliðum Íslands og var m.a. fyrirliði U19 landsliðs kvenna, og Daníel Snorri voru svo valin knattspyrnukona og knattspyrnukarl sumarsins en stjórn knattspyrnudeildar Hauka kemur að því vali.

Boðið var upp á fjölda skemmtiatriða og dýrindis kvöldverð sem Hauka-kokkurinn Sigþór Marteinsson annaðist.

Í lok kvöldsins var svo skellt í Hauka-pýramída með Daníel Snorra á toppnum.

Áfram Haukar!

 

Ljósm.: Karl Guðmundsson

Alexandra, Daníel, Marjani, Þórir og Sæunn.

Þjálfurum var þakkað fyrir frábært samstarf. Fv. Halldór Jón Garðarsson, form. meistaraflokksráðs kvenna, Hilmar Trausti Arnarson, Stefán Gíslason, Kjartan Stefánsson, Jóhann Unnar Sigurðsson og Jón Erlendsson, form. meistaraflokksráðs karla.

Liðsstjórum meistaraflokks kvenna, Helga Helgadóttir og Svava Björnsdóttir, var þakkað fyrir vel unnin störf á tímabilinu. Við erum enn að leita að Elís Fannari Hafsteinssyni, liðsstjóra meistaraflokks karla.

Lárus Jón Björnsson, sjúkraþjálfari meistaraflokks kvenna, tók við viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Þórður Magnússon, sjúkraþjálfari meistaraflokks karla, gat því miður ekki mætt.

Brynjar Viggósson, veislustjóri kvöldsins, í Hauka-jakkanum.

Að sjálfsögðu var skellt í Hauka-pýramída í lok kvöldsins.