Lokahóf HSÍ – Þrenn verðlaun til Hauka

Lokahóf HSÍ var haldið hátíðlegt síðastliðið föstudagskvöld en þá voru þau sem þóttu skara fram úr á tímabilinu í efstu tveimur deildum karla og kvenna verðlaunuð. Haukafólk lét sig að sjálfsögðu ekki vanta en þenn verðlaun fóru í hendur Haukafólks.

Björgvin Páll var valinn markvörður tímabilsins í Olís deild karla, Andri Scheving var valinn markvörður tímabilsins í Grill 66 deild karla fyrir frammistöðu sína með Haukum U og svo að lokum var Berta Rut Harðardóttir valin efnilegasti leikmaður Olís deildar kvenna. Hauka óska þessu flotta Haukafólki að sjálfsögðu til hamingju með sínar viðurkenningar og þakka þeim fyrir tímabilið.