Lokahóf handknattleiksdeildar 28. maí

Hér er einum af nokkrum titlum félagsins á árinu 2016 fagnað

Hér er einum af nokkrum titlum félagsins á árinu 2016 fagnað

Laugardaginn 28. maí nk. fer fram lokahóf handknattleiksdeildar Hauka þar sem frábærum árangri nýliðins tímabils verður fagnað eins og Haukafólki einu er lagið. Hófið fer fram að Ásvöllum, húsið opnar kl. 19 og borðhald hefst kl. 20. Aðgöngumiði kostar einungis 2016 kr. en boðið verður upp á grillað úrbeinað lambalæri frá Kjötkompaní með tilheyrandi meðlæti. Við hvetjum alla til að fjölmenna og eiga frábæra kvöldstund saman enda yfir miklu að gleðjast þegar litið er yfir veturinn. Aldurstakmark er 20 ára. Að sjálfsögðu verður farið yfir nýliðið tímabil, veitt verðlaun og eftirminnileg atvik rifjuð upp. DJ Jón Gestur heldur svo uppi stuðinu að því loknu. Ljúkum tímabilinu með stæl og sjáumst á lokahófinu á laugardaginn. Vinsamlegast sendið skráningu á aslaug@haukar.is eða í skilaboðum á facebook síðunni Haukar Topphandbolti. Hægt er að taka frá 10 manna borð! Miðasala fer fram á Ásvöllum.